
Grjótháls og mælimastur
Sigurður Guðmundsson
Undanfarið hef ég, ásamt fleiri frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins, verið spurður út í meint sinnaskipti okkar Sjálfstæðismanna í tengslum við nýtingu vindorku á Grjóthálsi.
Ég vil því ítreka afstöðu mína, og annarra á lista Sjálfstæðismanna, að við teljum Grjótháls ekki henta til nýtingar vindorku. Þetta hefur ítrekað komið fram, m.a. á íbúafundi í Þverárrétt og í bókunum okkar í skipulags- og byggingarnefnd (6. september 2024) sem og í sveitarstjórn (12. september 2024 og 9. október 2024). Þar er eftirfarandi bókað um afstöðu okkar til nýtingar vindorku á Grjóthálsi:
„Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins viljum jafnframt undirstrika það að samþykki okkar á þessu tiltekna deiliskipulagi er ekki á neinn hátt stuðningsyfirlýsing við nýtingu á vindorku á Grjóthálsi enda teljum við að nýting vindorku á Grjóthálsi muni ekki samrýmast stefnu stjórnvalda um vindorku sem er til vinnslu hjá Alþingi Íslendinga, t.a.m. vegna sýnileika svæðisins frá mikilvægum ferðamannastöðum.“
Þessi bókun sýnir skýrt afstöðu Sjálfstæðisflokksins til nýtingar vindorku á Grjóthálsi og er í samræmi við það sem við höfum sagt og bókað um málið á öllum stigum þess.
Í umræðunni hefur uppsetning mælimasturs á Sigmundarstöðum verið tengd beint við vindmyllugarð. Að mínu mati eru þetta þó aðskilin mál: Leyfi fyrir mælimastri til rannsóknar jafngildir ekki leyfi fyrir uppsetningu vindmylla.
Rannsóknin snýr að fýsileika nýtingar vinds á Sigmundarstöðum, en það er annað mál en ákvörðun um hvort og hvar eigi að heimila vindorkuver. Að banna, eða standa algjörlega í vegi fyrir, að landeigendur rannsaki hvað jarðir þeirra bjóða upp á, án málefnalegrar ástæðu, er að mínu mati forræðishyggja og ástæðulaus skerðing á eignarétti sem samrýmist ekki grunnstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Ef litið er til ferilsins í málinu lagði áheyrnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og byggingarnefnd fram málefnalega tillögu um að fresta afgreiðslu deiliskipulags fyrir mælimastur á Sigmundarstöðum þar til stefna stjórnvalda lægi fyrir. Tillagan var í samræmi við það sem Borgarbyggð, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hafði samþykkt 10. júní 2021. Hún var þó felld af fulltrúum allra flokka, nema fulltrúum Vinstri grænna sem studdu frestunina með okkur.
Þegar ljóst var að ekki var meirihluti í sveitarstjórn, undir forystu Framsóknarflokksins, fyrir frestun, kom málið til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn 9. október 2024. Vegna eðlis málsins, þar sem um rannsókn landeigenda á eigin jörð er að ræða, lá fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki standa í vegi fyrir veitingu leyfis fyrir mælimastri, að því gefnu að tryggt væri að mastrið yrði tekið niður að tveggja ára rannsóknartíma loknum.
Til að tryggja það tókum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins frumkvæði að því að krefjast nægrar tryggingar frá framkvæmdaraðilum fyrir niðurrifi mastursins að rannsókn lokinni. Það gekk eftir og var, eðli máls samkvæmt, sjálfsagt af hendi landeigenda. Þegar sú trygging lá fyrir var engin málefnaleg ástæða fyrir okkur til að standa í vegi fyrir rannsóknum landeigenda með uppsetningu mælimasturs á Sigmundarstöðum til tveggja ára.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ávallt standa vörð um frelsi einstaklingsins og eignarétt.
Sigurður Guðmundsson
Höf. skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps