Grípum unglingana okkar

Drífa Snædal talskona Stígamóta

Við stöndum á ákveðnum tímamótum því í mars var liðið ár frá því að netspjallinu Sjúktspjall var hleypt af stokkunum. Þetta er nafnlaust spjall þar sem ungmenni geta leitað eftir stuðningi, ráðgjöf og fræðslu varðandi samskipti, sambönd, ofbeldi og mörk. Á þessu fyrsta starfsári spjallsins leituðu fleiri en 300 ungmenni aðstoðar svo ljóst er að þörfin fyrir slíkt úrræði er brýn.

Algengasti notandinn á fyrsta ári Sjúks spjalls er 16 ára stúlka sem vill fá staðfestingu á því að henni hafi verið nauðgað. Stúlkurnar eru í þolendastöðu og hafa samband til að fá hjálp, aðstoð við að skilgreina þessa erfiðu reynslu sína og ráðgjöf um hvert þær geti leitað.

Við hjá Stígamótum sjáum í samtölunum sem berast okkur í gegnum Sjúktspjall að unglingarnir kenna sjálfu sér oft um og vilja ekki ræða við foreldra sína því þeim finnst þau hafa brugðist þeim, ef þau hafa orðið fyrir ofbeldi.

Birta Ósk er verkefnastýri Sjúka spjallsins. Hlutverk háns er að halda utan um allt sem viðkemur spjallinu og stundum sest hán sjálft á vakt við tölvuna og svarar spurningum og vangaveltum þeirra sem þangað leita. Birta segir eitt og annað hafa komið sér á óvart þegar hán hóf að svara fyrirspurnum ungmenna sem leita til spjallsins. Áður hafði hán haldið að unga kynslóðin væri með flest á hreinu þegar kemur að þessum málum. Að þau vissu hvað ofbeldi væri og þess háttar en það hafi ekki endilega verið raunin.

„Það kom mér að vissu leyti á óvart en þó ekki öllu því það getur verið afar flókið að skilgreina ofbeldi sem man sjálft verður fyrir. Mér fannst líka mjög sláandi að sjá hvað unga fólkið er að fást við mikla erfiðleika. En það kom mér á sama hátt ánægjulega á óvart hvað spjallið er mikið notað og hve mikið við getum hjálpað þeim sem leita til okkar,“ segir Birta Ósk.

Mikilvægur vettvangur til að ræða málin

Spjallið er hugsað fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum. Á spjallinu eru krakkar líka mikið að spyrja kynfræðsluspurninga eða að spyrja almennt um kynlíf. Hvort það sé skrýtið að vilja þetta eða hitt í kynlífi eða tala um eitthvað sem þeim þykir vandræðalegt. Það er mjög mikilvægt að hafa þennan vettvang til að ræða málin því það er jafnvel enginn annar sem þau geta leitað til, nema þá kannski sálfræðingur. Það er líka tvímælalaust áreiðanlegra og betra að leita ráða í þessum málum hjá fullorðnum einstaklingi sem er fagaðili heldur en til dæmis á meðal jafningja sinna.

Birta segir spjallið tvímælalaust skipta máli. „Mér finnst þetta auðvitað algjör snilld. Ef ég horfi til baka þá hefði það breytt miklu að hafa aðgang að svona spjalli á þessum árum. Þarna er hægt að fá svör við mörgu sem man áttar sig svo ekki sjálft á fyrr en mörgum árum seinna. Það hefði breytt miklu fyrir mig að fá svör og aðstoð á unglingsárum.“

Með þökk fyrir hönd þeirra sem hafa nýtt sér spjallið og munu gera það í framtíðinni – þitt framlag skiptir máli!

Sjá nánar: Sjúktspjall | Sjúkást (sjukast.is)

 

 

Með bestu kveðju,

Drífa Snædal

Höf. er talskona Stígamóta