
Gott að eldast í Borgarbyggð
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Öll viljum við fá tækifæri til að eldast af reisn – vera virk í samfélaginu, búa heima sem lengst, drekka morgunkaffibollann í friði og á eigin forsendum. Eldra fólk í dag er virkara og hraustara en áður, sem kallar á að þjónusta þróist í takt við breyttar þarfir og væntingar.
Í Borgarbyggð mun hlutfall eldri borgara halda áfram að hækka á næstu árum. Framsókn hefur á liðnu kjörtímabili lagt ríka áherslu á málefni eldri borgara og vill halda áfram á þeirri braut. Markmiðið er að tryggja aðgengilega og góða þjónustu en jafnframt að skapa aðstæður þar sem fólk getur búið lengur heima, við góða heilsu og með stjórn á eigin lífi.
Heilsuefling sem lykill að betri lífsgæðum
Við vitum öll hversu dýrmætt það er að halda góðri heilsu. Regluleg hreyfing bætir líðan, eykur styrk og styður við félagslega þátttöku. Framsókn hefur lagt sérstaka áherslu á að styðja fjölbreytt og aðgengilegt framboð af íþrótta- og félagsstarfi fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu.
Samstarfssamningur við Janus heilsueflingu árið 2023 markaði mikilvægt skref. Í gegnum hann fá íbúar 60 ára og eldri aðgang að markvissri heilsueflingu með það að markmiði að bæta færni, heilsu og lífsgæði. Verkefnið hefur þegar skilað góðri útkomu.
Auk þess þekkja margir til þess góða árangurs sem Íris Grönfeldt hefur náð undanfarin ár við heilsueflingu íbúa. Á þessu kjörtímabili var hún ráðin í fullt starf sem íþróttafræðingur hjá Borgarbyggð, sem hefur gert eldra fólki kleift að taka þátt í vatnsleikfimi, þol- og styrkjaræfingum í tækjasal undir hennar leiðsögn. Framsókn vill halda áfram á þessari leið, enda dregur heilsuefling úr þörf fyrir þyngri úrræði síðar.
Rétt þjónusta á réttum stað
Góð þjónusta snýst ekki aðeins um framboð á þjónustu heldur einnig um að fólk fái rétta þjónustu, á réttum tíma og á réttum stað. Í Borgarbyggð hefur verið stigið mikilvægt skref með þátttöku í verkefninu „Gott að eldast“ og í því samhengi stofnun móttöku- og matsteymis (MOMA-teymis). Þar sem vinna saman fulltrúar félagsþjónustu, heilsugæslu og Brákarhlíðar að því að samræma þjónustu og bæta utanumhald.
Framsókn leggur áherslu á að halda áfram þátttöku í verkefninu „Gott að eldast“ þar sem unnið er eftir skýrri framtíðarsýn um hvaða leiðir séu best til þess fallnar að bæta þjónustu við eldra fólk með skýrari verkaskiptingu, betra flæði milli þjónustustiga og markvissari heildarsýn.
Að styðja við búsetu heima
Flestir kjósa að búa sem lengst á eigin heimili og við sem sveitarfélag eigum að styðja við okkar íbúa til þess að tryggja það sem raunhæfan möguleika. Til þess þarf öfluga þjónustu sem styrkir sjálfstæði fólks.
Félagsleg heimaþjónusta, akstursþjónusta, heimsendur matur og dagdvöl eru lykilþættir í því að gera fólki kleift að búa lengur heima. Áherslan þarf að vera á valdeflingu og að viðhalda færni, styrkja einstaklinginn og auka lífsgæði. Þetta er nálgun sem Framsókn vill áfram treysta.
Dagþjálfun – horft til framtíðar
Dagþjálfun í Brákarhlíð gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þá sem þurfa meiri stuðning. Hún sameinar hjúkrun, þjálfun og félagslega virkni með það að markmiði að fólk geti búið áfram heima.
Þörfin fyrir dagþjálfun mun aukast á næstu árum. Horfa þarf til framtíðar og huga að stækkun og þróun aðstöðunnar í Brákarhlíð. Með því er ekki aðeins verið að bæta þjónustu heldur einnig verið að styrkja heildarkerfið.
Öldungaráð – rödd eldri borgara
Öldungaráð hefur verið starfrækt í Borgarbyggð um nokkurt skeið og er mikilvægur vettvangur fyrir eldri borgara til að hafa áhrif á eigin málefni.
Framsókn vill styðja við hlutverk ráðsins enn frekar. Það gegnir lykilhlutverki í að koma sjónarmiðum eldri borgara á framfæri og leggja fram tillögur um þjónustu, aðstöðu og félagsstarf. Framsókn leggur áherslu á að þjónusta við eldri borgara sé mótuð á þeirra forsendum – út frá þeirra þörfum, reynslu og áhugasviði.
Skýr stefna
Í Borgarbyggð hefur á undanförnum árum verið byggt upp öflugt og heildstætt kerfi sem styður við eldri íbúa, með sérstaka áherslu á heilsueflingu, samþætta þjónustu og stuðning í daglegu lífi. Framsókn leggur áherslu á að halda áfram þessari mikilvægu vegferð og þróa þjónustuna í takt við þarfir þeirra sem hennar njóta. Með ábyrgri stefnu og skýrum forgangsröðunum getum við tryggt að það sé og verði áfram gott að eldast í Borgarbyggð.
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Höf. skipar 2. sæti framboðs Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps