
Góð stjórnsýsla?
Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Í aðdraganda kosninga státar meirihlutinn í Borgarbyggð sig af öllu því sem framkvæmt hefur verið á kjörtímabilinu. Þar er margt gott að finna, enda hefur það greinilega verið mikið kappsmál að „láta verkin tala“ fyrir lok kjörtímabilsins, sama hvað það kostar.
Eitt þessum verkefnum er glæsileg viðbygging við grunnskólann á Kleppjárnsreykjum sem enginn dregur í efa að hafi verið löngu tímabær. Ég set hins vegar spurningarmerki við hönnun hússins og tel að það hefði mátt gera töluvert hagkvæmari byggingu sem myndi falla betur að þeim byggingum sem fyrir eru, t.d. leikskólabyggingunni sem opnuð var fyrir um 5 árum síðan. Einnig virðist vera að meira hafi verið lagt upp úr útliti frekar en praktík, t.d. með því að hafa flatt þak, veggi á ská og alltof lítið eldhús.
Svo höfum við þetta fína knatthús sem mun eflaust nýtast mörgum vel en að mínu mati hefði mátt staldra við og íhuga forgangsröðun og staðsetningu til framtíðar. Eftir því sem ég best veit, þá þurfa iðkendur í húsinu að ganga um 350 metra hvora leið frá íþróttamiðstöðinni þar sem ekki er gert ráð fyrir neinum bílastæðum við knatthúsið. Og talandi um bílastæði, við íþróttahúsið eru einungis um 50 bílastæði og aðkoman að því er í gegnum íbúðargötur. Er kannski næsta verkefni að gera bílastæðahús undir Skallagrímsgarði eða er Borgar(nes)lína á teikniborðinu?
Svo er byggðin að færast norðar í bæinn, hefði kannski mátt byggja bæði nýtt íþróttahús og knatthús norðar í bænum?
En nóg um það, þessi hús eru risin og við gerum gott úr því.
Næsta mál á dagskrá Framsóknarflokksins er að rífa hús við Þorsteinsgötu svo hægt sé að byggja við íþróttahúsið. Það er vissulega þörf á bættri aðstöðu og nýju parkethúsi en eigum við ekki bara aðeins að slaka á og byrja á því að laga þá innviði sem þarfnast viðhalds og stækkunar? Má þarf helst nefna báða leikskólana í Borgarnesi þar sem hluti starfseminnar fer fram í gámum.
Svo eru það gæluverkefnin. Á dagskrá sveitarstjórnar 9. október 2025 var að taka fyrir tillögu byggðarráðs um að ganga til samninga við verktaka varðandi götulýsingu að Einkunnum fyrir tæplega 53 milljónir. Framkvæmd sem eflaust nýtist mörgum og bætir aðgengi að Einkunnum en kannski hefði alveg mátt nota þessar 53 milljónir í aðra mikilvægari innviði, sérstaklega í ljósi þess að tvær stórar og dýrar framkvæmdir voru í gangi á þessum tíma og blikur á lofti í alþjóðamálum. Á þessum fundi boðaði einn aðalmaður Framsóknarflokksins forföll og varamaður sat fundinn í hans stað. Tillagan var felld með 5 atkvæðum á móti 4. Viku síðar, 17. október boðaði forseti sveitarstjórnar aukafund í sveitarstjórn þar sem allir aðalmenn Framsóknar voru mættir. Eina málið á dagskrá var þessi götulýsing að Einkunnum og var tillagan þá samþykkt með 5 atkvæðum gegn 4.
Nú er ég enginn stjórnsýslufræðingur, en það getur ekki talist eðlileg stjórnsýsla að mál sem hefur fengið fullnaðarafgreiðslu í sveitarsjórn sé þröngvað í gegn á aukafundi viku síðar ef forseta sveitarstjórnar mislíkar niðurstaðan.
Áhugasamir geta flett þessu öllu upp í fundargerðum á heimasíðu Borgarbyggðar.
Það er kannski allt í lagi að minnast á það að á þessum tíma var fráfarandi oddviti Framsóknarflokksins og forseti bæjarstjórnar að opna, ásamt öðrum, sánagusu í Einkunnum. Mögulega er það bara einstaklega óheppileg tilviljun en dæmi hver fyrir sig.
Eigum við ekki betra skilið? Kjósum betri stjórnsýslu. Kjósum Miðflokkinn.
Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Höfundur skipar 5. sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð