Glæsilegt – til hamingju!

Fyrrum formenn ÍA senda kveðju

Það er okkur sérstakt ánægjuefni að fylgjast með ungu og efnilegu íþróttafólki á Akranesi og þar er efniviðurinn svo sannarlega til staðar. Um áratugaskeið hafa íþróttir og ekki hvað síst knattspyrnan borið hróður Skagans víða og fyllt bæjarbúa stolti. Þannig þarf það að vera um ókomna tíð. Nú um helgina setti 3. flokkur karla kórónu á glæilegan árangur sumarsins réttum 47 árum frá því að Skagaliðið lék Evrópuleik gegn Bareclona á Camp Nou, 25 árum frá frægum Íslandsmeistaratitli 2001 og 30 árum frá Íslandsmeistaratitli 1996. Piltarnir í 3. flokki minntu rækilega á þessa merkis viðburði og skiluðu í sumar Íslandsmeistaratitli, sigri á Rey-Cup og nú bikarmeistaratitli.

Tvö glæsileg lið, ÍA og Breiðablik, léku til úrslita og var til þess tekið hversu flottir fótboltamenn voru í báðum liðum og leikurinn sjálfur þeim öllum til mikils sóma. En sigurinn lenti verðskuldað Skagamegin og glæsilegt sumar að baki. En árangur í íþróttum verður verður ekki að veruleika með vonina eina að leiðarljósi. Að baki þessum árangri er samhentur og ósérhífinn hópur efnilegra leikmanna drifinn áfram af flottu þjálfarateymi, þeim Sigurði Jónssyni og traustum aðstoðarmönnum hans Elínbergi Sveinssyni og Hafþóri Péturssyni.  Hafi þeir miklar þakkir fyrir störf sín.

Það er sífellt verkefni að búa þannig að íþróttafólki á Akranesi, mannauði og aðbúnaði að börn og unglingar öðlist félagsþroska og geti elt drauma sína. Þar leika stjórnir félaga og foreldrar stórt hlutverk. Ekki er síður mikilvægt fyrir ímynd Akraness að glæsilegur árangur náist svo eftir verði tekið. Það er sífellt og krefjandi verkefni að hlúa að íþróttahreyfingunni og því eru þau sem um véla hvött til dáða – Skaganum til heilla. Þriðji flokkur karla, með Sigga Jóns og teymi hans í brúnni, styður svo sannarlega við þau verðmæti sem felast í öflugu íþróttastarfi og framlögum til íþróttamála.

 

Fyrrum formenn KFÍA:

Gunnar sigurðsson

Gísli Gíslason

Jón Gunnlaugsson