
Gagnrýni á skeytingarleysi strokuð út – Hiti í ljósmálum í Borgarbyggð
Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir
Settutangi í Borgarnesi er vinsæll viðkomustaður jafnt af ferða- og heimamönnum sem koma og njóta sólarlags á sumrin og Norðurljósa á veturnar og er staðurinn sá eini í gamla bænum í Borgarnesi þar sem hægt er að horfa upp til himins án þess að ljósamengun skaði upplifunina.
Þetta mál kemur í kjölfar úlfúðar sem ríkt hefur í Borgarnesi eftir að hundruðir manna söfnuðust saman á Settutanga til að njóta almyrkvans. Um leið og dimmdi kviknaði á flæðiljósum á höfninni gegnt tanganum sem skemmdi upplifunina fyrir mörgum. Margrét Rósa Einarsdóttir hótelstýra í Englendingavík vakti máls á þessu í fyrrnefndum umræðuhópi en hún hafði beðið sérstaklega um að gætt yrði að því að ekki yrði kveikt á ljósum á þessu svæði þegar almyrkvinn ætti sér stað. Ljósastaurarnir sem settir voru upp af Faxaflóahöfnum í desember 2024 var komið fyrir án þess að nein umræða færi fram og þar er flæðilýsing sem er í óþökk margra íbúa.
Yfirvöld í Borgarbyggð hafa á undanförnum árum látið undir höfuð leggjast að framfylgja lögum um grenndarkynningar en á vef Alþingis kemur m.a. fram að tilgangur þeirra sé að tryggja að samráð sé haft við almenning við gerð skipulagsáætlana, tryggja vernd landslags, náttúru og menningarverðmæta og að koma í veg fyrir umhverfisspjöll.
Ég varð ekki vör við að nýtt íþróttahús handan við Settutanga hafi farið í gegn um grenndarkynningu né að samráð hafi verið haft við íbúa þegar klettaborgir voru sprengdar í burtu til að koma fyrir nýrisinni blokk um miðbik Borgarness. Á vefnum borgarbyggð.is er flipi merktur Grenndarkynningar, þar er að finna fundargerðir og upptökur en ekki er minnst á hvernig staðið er að grenndarkynningum.
Tjáningarfrelsi ásamt virðingu við náttúru og íbúa þarf að hafa að leiðarljósi til að Borgarbyggð geti blómstrað.

Hér að ofan er skjáskot af færslunni sem var fjarlægð ásamt mynd af sólsetri á Settutanga.
Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir