Gæði vatns á Akranesi í dag og til framtíðar

Brynja Ragnarsdóttir

Veitur hafa undanfarin ár viljað sinna þörfum sveitarfélaganna sem þau þjónusta, enn betur. Samstarfið við Akranes gengur afar vel þótt ýmsar áskoranir séu þar, einkum í köldu vatni til heimila og fyrirtækja.

Vatnið á Akranesi er tekið úr lindum í Slögu og Óslæk, og úr lóni í Berjadalsá. Síðastnefnda vatnsbólið er opið en því geta fylgt áskoranir eins og t.d. tengt þörungavexti sem kom upp fyrir nokkrum árum.

Veitur og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands vakta þessi vatnsból mjög vel í samræmi við kröfur neysluvatnsreglugerðar og hafa sýnatökur skilað niðurstöðum sem mæta kröfum um hreinleika og PH gildi. Enda ekki annað í boði en að veita fullum vatnsgæðum til Skagamanna.

Hvað með framtíðina?

Hjá Veitum höfum við hins vegar áhyggjur af vatnsbólum Akraness til langrar framtíðar í vatnsöflun og höfum við því verið að kanna ólíka valkosti um önnur vatnstökusvæði á undanförnum árum.

Veitur meta að besti kosturinn til langs tíma sé að tengja vatnsveitukerfið á Akranesi við vatnsveitukerfið á Kjalarnesi. Við eigum líka í góðu samtali við landeigendur á svæðum í nágrenni Akraness sem við vonumst til að muni leysa áskoranir í vatnsöflun til skemmri tíma.

Allar okkar aðgerðir á næstu árum miða að því að vatnstaka fyrir íbúa Akraness taki breytingum til hins betra með því að auka forðann sem við skilum til fyrirtækja og heimila.

Álagstími

Veturinn hefur verið óvanalega þurr og þegar loðnuvertíðin var að bresta á þurftu Veitur að biðja íbúa og fyrirtæki í bænum að fara sparlega með vatnið þar sem mikið vatn þarf til verkunar á loðnunni. Brim og Veitur tóku höndum saman og þróuðu í skyndi hagkvæma lausn sem gerði þeim kleift að nýta sjó í fyrri hluta framleiðslunnar en hreint vatn í síðari hluta hennar.

Með þessu náðist að skapa tekjur fyrir sveitarfélagið og þjónusta fyrirtækið þótt vissulega hafi þurft að loka Guðlaugu og Jaðarsbakkalaug í stuttan tíma í samvinnu við sveitarfélagið. Skagamenn lögðust á eitt og huguðu að kalda vatninu á þessum álagstíma sem var vel gert.

Það álag sem hefur verið á vatnsveituna á Akranesi er því fyrst og fremst tímabundið og tengist óvenju löngu þurrka tímabili samhliða mikilli notkun. Veitur, ásamt stórnotendum, brugðust við stöðunni með markvissum aðgerðum til að tryggja afhendingaröryggi.

Fjárfestingar fram undan á Akranesi

Heildarfjárfestingaráætlun Veitna fyrir Akranes nemur í dag um 7,7 milljörðum króna næstu fimm árin fyrir alla miðla. Þar af er áætlað að um 2,2 milljörðum króna verði varið í verkefni tengd vatnsveitunni á Akranesi. Þau verkefni sem nú eru í undirbúningi munu hækka þá fjárhæð verulega á komandi árum.

Veitur vinna að því að styrkja vatnsöflun og innviði, m.a. með endurnýjun og styrkingu lagna, aukinni fjölbreytni í vatnsauðlindum og undirbúningi nýrra vatnsbóla þar sem það á við. Markmiðið er að tryggja örugga og sjálfbæra vatnsafhendingu til heimila og atvinnulífs, í dag og til framtíðar.

 

Brynja Ragnarsdóttir

Höf. er forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum