Framleiðsla rafeldsneytis á Grundartanga

Bjarni Þór og Guðjón

Full ástæða er til að minna reglubundið á mikilvægi atvinnu- og nýsköpunar. Á hinu öfluga atvinnusvæði Grundartanga eru starfandi 20 stór og smá iðn‐ og þjónustufyrirtæki. Daglega sækja þar um 1.100 manns vinnu og að auki eru önnur afleidd störf um 2.100 vegna starfsemi á Grundartanga. Þetta öfluga samfélag fyrirtækja er stærstu vinnuveitendur Hvalfjarðarsveitar og Akraness. Það segir sína sögu að tvö stærstu fyrirtækin, Norðurál og Elkem, greiða til samfélagsins í laun og þjónustu um 20 milljarða á ári.

Þetta öfluga atvinnusvæði Grundartanga hafa fyrirtæki og sveitarfélög byggt upp í sameiningu. Til að tryggja framþróun svæðisins enn frekar var Þróunarfélag Grundartanga stofnað 2016 til að móta eitt, öflugt atvinnusóknarsvæði og nýja vaxtarmöguleika.

Grænt iðn- og atvinnusvæði

Þróunarfélagið byggir nú upp nýsköpunar‐ og þróunarklasa á Grundartanga sem styður fjölbreytta starfsemi ólíkra fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga, til umbóta, samstarfs og þróunar. Metnaðurinn liggur til sjálfbærrar verðmætasköpunar, lágmörkunar vistspors og bættrar umhverfisverndar.

Félagið hefur staðið fyrir fjölbreyttum þróunar‐ og framfaramálum. Þar má nefna skoðun á nýjum umhverfisvænum orkukostum, orkuendurvinnsla, hitaveitu og framleiðslu nýrra orkugjafa á borð við rafeldsneyti. Markmiðið er að fullnýta virðiskeðju framleiðslunnar, forðast sóun verðmæta og byggja upp grænt iðn- og atvinnusvæði í hringrásarhagkerfi í anda sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Skýrsla um orkuskipti og rafeldsneyti

Nú í sumar kynnti Þróunarfélagið skýrslu nýsköpunarfyrirtækisins Icefuel um kosti framleiðslu á rafeldsneyti hér á landi. Þar kemur fram að bein notkun rafmagns sé talinn einn besti valkostur sem orkugjafi íslenskra samgöngu- og farartækja. Það er hins vegar ekki alltaf raunhæft og því sé nauðsynlegt að huga að öðrum möguleikum til orkuskipta í samgöngum. Slíkt sé eina leiðin til að uppfylla markmið og skyldur Íslands í loftslagsmálum. Þar mun framleiðsla á rafeldsneyti hér á landi leika stórt hlutverk.

Rafeldsneyti er kolefnishlutlaus umhverfisvænn orkugjafi eða eldsneyti sem byggir á þekktri framleiðslutækni með efnahvörfum á Ammóníaki, metanól, metan, rafolíu og hreinu vetni sem unnið er með rafgreiningu. Þar sem rafgreining er knúin endurnýjanlegri orku verði þetta kolefnishlutlaus framleiðsla.

Til framleiðslunnar er notuð endurnýjanleg raforka sem og glatvarmi frá framleiðslu Elkem. Að auki verður nýtt koldíoxíð sem þegar er til staðar í vistkerfi Grundartanga. Þannig verði dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, orkuskipti efld og stuðlað að kröftugri nýsköpun og sjálfbærni á atvinnusvæðinu. Það er eftirsóknarverð vegferð.

 

Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Icefuel.

Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartanga.