Framhald af viðbót við – opið bréfi til bæjarstjórnar

Andrés Ólafsson

Bæjarfulltrúar á Akranesi hafa ekki enn þegar þessar línur eru skrifaðar séð tilefni til að svara harðorðu opnu bréfi í Skessuhorni 26. janúar s.l. frá leiðbeinendum í Fjöliðjunni.

Það sama átti við þegar Emma starfsmaður í Fjöliðjunni afhenti forseta bæjarstjórnar undirskriftalista með um 600 hundruð undirskriftum einstaklinga sem mótmæltu fyrirhuguðum flutningi af Dalbraut 10 á fyrstu hæð í blokk á Dalbraut 8 og uppskiptum á starfsemi Fjöliðjunnar eða með yfirskriftinni „Ekkert um okkur, án okkar“. Lítið um svör.

Bæjarstjórn hélt sig við sama heygarðshornið, þegar undirskriftalistinn var birtur/falinn í fundargerð bæjarstjórnar. Um undirskriftalistann var ekki fjallað, né hverju hann er að mótmæla. Hann var settur sem viðhengi undir dagskrárlið, um stýrihóp samfélagsmiðstöðvar. Ekki það merkilegur hópur sem undirskriftalistinn er að styðja við, að hann fái sérstakan dagskrárlið í fundargerð bæjarstjórnar. Einnig er lögð vinna að þeirra hálfu að skilgreina, hvar hver og einn er búsettur. Er bæjarstjórn ekki að selja Akranes sem góðan stað til að búa á?

Í Skessuhorni 9. febrúar kemur grein frá bæjarfulltrúum á Akranesi sem ber yfirskriftina „Fjöliðjan og ný samfélagsmiðstöð.“ Athygli vert að þau tali sérstaklega um Fjöliðjuna annars vegar og nýja samfélagsmiðstöð hins vegar. Þau sjá ekki tilefni til að svara opnu bréfi leiðbeinanda í Fjöliðjunni í grein sinni.

Ég vil með nokkrum línum vitna í eftirfarandi setningar úr grein bæjarfulltrúa:

  • Grein bæjarfulltrúa: „Þessi ákvörðun kom í kjölfarið á deilum og ósætti í bæjarstjórn um hvernig uppbyggingu Fjöliðjunnar skyldi háttað eftir brunann sem þar varð þann 7. maí 2019 og varð til þess að starfsemin þurfti að flytja tímabundið í annað húsnæði.“

Um hvað var deilt? Ekki að byggingin yrði á Dalbraut 10, það bera allar samþykktirnar merki um. Voruð þið ekki deila um hvort byggja ætti við núverandi húsnæði sem kostaði um 100 m/kr minna og afhendingartími yrði á árinu 2023, eða að rífa ætti núverandi húsnæði og byggja nýtt á reitnum með afhendingartíma árið 2024?

  • Grein bæjarfulltrúa: „Leitað var leiðsagnar margra aðila um hvernig verkefnum og húsnæðismálum Fjöliðju framtíðar væri best fyrir komið. Sú vinna færði bæjarfulltrúa nær endanlegri ákvörðun um húsnæðismál og uppbyggingu Fjöliðjunnar.“

Hvað voruð þið að gera í 2 ár og 7 mánuði? Voruð þið ekki að leita leiðsagnar fjölda aðila? Allar samþykktirnar sem þið gerðuð varðandi staðsetningu voru á Dalbraut 10. Við íbúar hér á Akranesi eða a.m.k. flestir gerum kröfu til þess að bæjarfulltrúar séu þokkalega vakandi þegar þau greiða atkvæði um tillögur sem eru lagðar fram og m.a. vísa til staðsetningar Fjöliðjunnar á Dalbraut 10.

  • Grein bæjarfulltrúa: „Hlutirnir gerðust hins vegar hratt í desember og í meðförum bæjarstjórnar í lok vinnu við fjárhagsáætlun víkkaði hugmyndin um uppbygginguna og ákveðið var að hugsa stærra og til lengri tíma. Bæjarstjórn bar sú gæfa að komast að sameiginlegri niðurstöðu sem allir bæjarfulltrúar eru ánægðir með og stoltir af.“ (lbr.AÓ)

Eruð þið bæjarfulltrúar virkilega stoltir af samþykkt ykkar, eftir að hafa í 2 ár og 7 mánuði haldið væntingum fatlaðra starfsmanna Fjöliðjunnar um að farið væri í uppbyggingu á Dalbraut 10 og síðan á einum mánuði farið í bakið á þeim með uppskiptingu og breyttum staðsetningum án þeirra aðkomu? Var ekki á þessum 2 árum og 7 mánuðum hugsað stærra og til lengri tíma fyrir starfsmenn Fjöliðjunnar?

  • Grein bæjarfulltrúa: „Fjöliðjan er eitt af framsæknustu vinnuúrræðum sem til eru á landinu í dag og án efa eru margir sem gjarnan vildu hafa slíka starfsemi í sínu sveitarfélagi. (lbr.AÓ). Hér er boðið upp á fjölbreytta starfsemi með fjölbreyttum verkefnum fyrir fjölbreyttan hóp fólks, starfið er einstaklingsmiðað eins og kostur er.“

Ég skal játa að ég hélt að ég hefði villst á greinum, þegar ég las þetta fyrst. Hvernig verða vinnuúrræði að því sem þau eru í dag? Það er fyrir duglegt og ánægt starfsfólk, góða leiðbeinendur og stjórnendur á löngum tíma. Það er ekki fyrir ákvarðanir ánægðra og stoltra bæjarfulltrúa. Því verður það enn og aftur óskiljanlegra að þau sem eiga stærstan þátt í að byggja upp eitt af framsæknustu vinnuúrræðum fatlaðra sem til eru á landinu skuli vera þau einu sem ekki máttu koma að feluleiknum við niðurbrot á þessum framsæknu vinnuúrræðum.

En hvers vegna að brjóta Fjöliðjuna upp?

Í valkostagreiningu sem unnin var af bæjarstjóra og allir aðrir en stjórnendur, leiðbeinendur, starfsmenn og flestir aðstandendur starfsmanna í Fjöliðjunni fengu að koma að eða voru spurðir álits á segir m.a:

  • Við frekari skoðun í skipulags og umhverfisráði hafa komið fram efasemdir um fjárhagslegan ávinning af uppbyggingu Fjöliðjunnar á Dalbraut 10 vegna stærðar lóðar og áhrifa á heildarskipulag Dalbrautarreits (lbr.AÓ).
  • Dalbrautarreitur hefur verið gjöfull í tekjuöflun og skiptir verulegu máli í að afla Akraneskaupstað sértekna (lbr.AÓ).

Þétting byggðar með öflun sértekna virðist vera lykill bæjarfulltrúa við ósjálfbærum rekstri Akraneskaupstaðar og elta þau þar Reykjavíkurborg. Staðsetning Fjöliðjunnar á Dalbraut 10 er farartálmi á þeirri leið.

Hvað var þá til ráða? Hugmyndasmiðir bæjarstjórnar fóru á hugarflug, niðurstaðan; Samfélagsmiðstöð, sem byggir á hugmyndafræði um samfélag án aðgreiningar, segir í samþykkt bæjarstjórnar.

Hvað er samfélag án aðgreiningar? „Samfélag sem gerir ráð fyrir að kraftar allra nýtist, að raddir allra heyrist og að fólk fái að blómstra á sínum forsendum er samfélag án aðgreiningar.“ (Tilvitnun í grein HBH í mbl. 18.04.2015). Að raddir allra heyrist og fólk fái að blómstra á sínum forsendum, en ekki forsendum/röddum bæjarfulltrúa, ráðsmanna í notendaráði og þeirra embættismanna sem komu að málinu og sem hlusta ekki á þessar raddir. Frístund, sem í eru nemendur úr neðstu bekkjum grunnskóla og starfsmenn Fjöliðju sem eru á aldrinum 18+ eða í vinnu þar alla sína ævi eða meðan þau hafa getu til, er það samfélag án aðgreiningar.

Í grein á heimasíðu Akraneskaupstaðar segir: „Fjöliðjan hefur verið einn opnasti vinnustaður á Akranesi með miklum heimsóknum daglega. Þessi samfélagslega þátttaka allra starfsmanna hefur verið mikilvægur og verðmætur þáttur í allri starfsemi og vinnustaðamenningu Fjöliðjunnar.“ Hér horfum við til Fjöliðjunnar fyrir niðurbrot, vinnustaður sem þverskurður Skagamanna og fleiri heimsækja þar m.a. endurvinnsluna/ flöskumóttökuna, er þetta ekki líkara samfélagi án aðgreiningar bæjarfulltrúar?

Þétting byggðar – Dalbrautarreitur – Fjöliðjan Dalbraut 10. Sértekjur – Markmið og úrvinnsla valkostagreiningarinnar við skoðun, var að fá fjárhagslega niðurstöðu sem leiddi af sér að Fjöliðjan yrði að fara af Dalbraut 10 og þar yrði reist blokk/ fjölbýlishús í staðinn. Við þessa vinnu yrði að halda trúnaði, svo stjórnendum, leiðbeinendum, starfsmönnum Fjöliðju og nær öllum aðstandendum yrði haldið utan hennar.

Fulltrúum í skipulags- og umhverfisráði lá svo mikið á að þau samþykktu á fundi 21. febrúar sl. að leggja til við bæjarráð að Dalbraut 10 yrði rifinn. Snúa hnífnum í sári starfsfólks Fjöliðjunnar, svo þeirra draumsýn um að á Akranesi væru til aðilar sem hlustuðu á þau.

Hvert er stefnt með þéttingu byggðar?

Dalbrautarreitur (sjá mynd) er svæði sem stefna bæjarstjórnar er að þétta byggð á og afla sértekna samkvæmt ný samþykktri fjárhagsáætlun. Í byrjun árs 2017 var auglýst breyting á aðal- og deiliskipulagi neðri hluta Dalbrautarreits (Dalbr. 2 – 8). Athugasemdir bárust frá fjölda íbúa við Dalbraut. Tekið var tillit til lítils hluta athugasemda. Síðan hófst bútasaumurinn árið 2020, breytingin sem gerð var 2017 á Dalbraut 6, var aftur færð nær í upphaflegu útgáfuna. Eftirfarandi upplifun íbúa á Dalbraut sem gerði í annað sinn athugasemd við tillögu að breytingu segir: „Með þessu er ekki annað að heyra en að bæjaryfirvöld ætli að ganga á bak orða sinna og falla frá þeim breytingum sem búið var að gera og samþykkja og snúa að Dalbraut 6 til að koma til móts við athugasemdir íbúa og færa bygginguna aftur til fyrra skipulags. Þetta er að okkar mati í hæsta máta óeðlileg vinnubrögð og dónaskapur í garð íbúa Dalbrautar“ (lbr.AÓ). Erum við ekki að sjá þetta núna gagnvart fötluðum íbúum Akraness sem vinna í Fjöliðjunni? Bæjarfulltrúar ganga á bak orða sinna til 2 ára og 7 mánaða. Bútasaumur vegna Dalbrautar 8 er í ferli hjá bæjarstjórn.

Hver verða næstu svæði í þéttingu byggðar með byggingu háhýsa?

Ægisbrautarreitur, Landsbankahús við Akratorg (væntanlega rifið) og þétt byggð í gamla bæjarhlutanum, íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum (tekið í bútum án heildarskipulags) ekki ennþá verið tekin afstaða til tillagna í hugmyndasamkeppni á síðasta ári og fleira?

Einn er þó sá staður sem byggð verður ekki þétt eins fram kemur í eftirfarandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins við afgreiðslu fjárhagsáætlunar: „Þá hefur verið fallið frá uppbyggingu íbúðarkjarna í Jörundarholti og bæjarstjórn einsett sér það verkefni að finna kjarnanum nýja staðsetningu í sátt við samfélagið og þá sem málið varða.“ Bæjarfulltrúar mega þó eiga það að þau hlusta á suma íbúa Akraness.

Á fundi sem haldinn var í húsnæði Fjöliðjunnar á Smiðjuvöllum sl. miðvikudag með aðstandendum, starfsmönnum, leiðbeinendum og stjórnendum Fjöliðjunnar, gat ég þess að á yfir 50 ára ferli mínum í afskiptum af pólitík og sem embættismaður Akraneskaupstaðar og stofnana hans hefði ég aldrei upplifað aðra eins niðurlægingu og fötluðum starfsmönnum Fjöliðjunnar væri sýndur þessa dagana. Á fundinum voru bæjarstjóri og sviðstjóri velferðar- og mannréttindasviðs, en enginn bæjarfulltrúi sem hefðu haft gott af því að hlusta á aðstandendur starfsmanna. Sum vilja bara ekki hlusta.

Er ekki kominn tími á nýtt framboð óháð stjórnmálaflokkum, framboð sem er fyrir alla bæjarbúa?

 Andrés Ólafsson

Þessi mynd felur í sér mögulegt byggingarmagn á Dalbrautarreit án lóðar fyrir Fjöliðju. Vantar á myndina blokkir á efsta hluta reitsins.