Frá Sundabraut til nýrrar Breiðafjarðarferju

Eyjólfur Ármannsson

Lagning Sundabrautar er án vafa þjóðhagslega hagkvæmasta vegaframkvæmdin sem völ er á í dag. Sundabraut myndi stytta svo um munar þann tíma sem tekur að aka á milli NV-hluta landsins og höfuðborgarinnar. Sundabraut skiptir því miklu máli fyrir NV-kjördæmi og Norðurland. Ekki síst fyrir Akranes og myndi styrkja verulega stöðu bæjarins sem hluta af atvinnusvæðis höfuðborgarinnar. Sundabraut er eðlilegt framhald Hvalfjarðarganga og mikilvægt að tvöföldun Vesturlandsvegar ljúki sem fyrst.

Stórátak í jarðgangagerð

Stórefla þarf jarðgangagerð. Jarðgöng eiga að vera sjálfsagður hlutur til að stytta vegalengdir og tryggja færð allt árið. Mikilvægt er að byrja sem fyrst á gerð jarðganga í gegnum Hálfdán milli Bíldudals og Tálknafjarðar (6,1 km) og undir Mikladal milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar (2,8 km). Hefja þarf undirbúning að jarðgangagerð á Tröllaskaga á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Í dag virðist vera litið á jarðgöng á Íslandi sem fágætan lúxus. Jarðgangagerð á nokkurra ára fresti staðfestir það. Mikilvægt er að nútíminn hefji innreið sína í samgöngumálum á landsbyggðinni. Ísland og NV-kjördæmi á þar langt í land.

Yfir 1100 jarðgöng í Noregi

Fjalllendi á Íslandi er mun minna en í Noregi og samgöngur á landi frá náttúrunnar hendi mun betri á Íslandi en í Noregi, sem líkja má við Sviss og Alpana. Flatlendi líkt og á Suðurlandi finnst ekki í Noregi. Noregur er þrisvar sinnum stærra en Ísland og íbúar Noregs um fjórtán sinnum fleiri. Þegar kemur að fjölda og lengd jarðganga er munurinn á þessum nágrannaþjóðum stórkostlegur. Fámenni okkar í stóru landi og ríkidæmi Noregs skýrir ekki þennan mun og er hann rannsóknarefni.

Í Noregi eru vel yfir 1100 jarðgöng (2018). Samanlögð vegalengd þeirra er yfir 800 km en 73 af þessum jarðgöngum eru yfir 3000 metra löng. Í Noregi eru 33 neðansjávargöng. Lengstu jarðgöng Noregs eru í Sognsfirði, um 25 km að lengd (Lærdalstunnelen). Jarðgöng eru ekki einungis á landsbyggðinni. Umferðarmestu jarðgöng Noregs eru í miðborg Oslóar (Festningstunnelen) en 77.000 farartæki fara um þau á sólarhring.

Tíu jarðgöng á Íslandi

Samkvæmt vef Vegagerðarinnar eru á Íslandi tíu jarðgöng í notkun. Lengstu jarðgöngin eru undir Breiðadals- og Botnsheiði (9,1 km) og frá 1996, einbreið þriggja arma og barn síns tíma. Hvalfjarðargöng (5,8 km) eru frá 1998. Bolungarvíkurgöng (5,4 km) eru frá 2009, Héðinsfjarðargöng, samtals 11 km, eru frá 2010, Norðfjarðargöng (7,9 km) frá 2017, Vaðlaheiðargöng (7,5 km) 2018 og Dýrafjarðargöng (5,6 km) 2020. Styttri göng eru Arnardalshamar (30 m) 1948, Strákagöng (800 m) 1967, Múlagöng (3,4 km) 1990, Almannaskarðsgöng (1,3 km) 2005. Lengri er listi jarðganga á Íslandi ekki og segir það sína sögu.

Til samanburðar má benda á lista yfir jarðgöng í Noregi á vefalfræðiorðabókinni Wikipedia (Liste over veitunneler i Norge) og Wikiwand (Veitunneler i Norge).

Þessi munur á Noregi og Íslandi á fjölda og lengd jarðganga er ótrúlegur og lýsir skorti á skilningi á mikilvægi jarðganga á Íslandi jafnframt því að sýna mun á byggðastefnu í ríkjunum og skort á stefnumörkun. Eitthvað er það.

Nýr nútíma Baldur

Nú þegar Dýrafjarðargöng eru komin í notkun og lagningu nýs vegar um Dynjandisheiði er lokið er fyrirsjáanlegt að Ísfirðingar, Bolvíkingar o.fl. muni aðallega aka þá leið suður til Reykjavíkur. Mikilvægt er að þeir geti þá valið milli þess að aka Barðaströndina eða taka Breiðafjarðarferjuna Baldur. Að sigla með Baldri yfir Breiðafjörð eru mikil þægindi og sparar um þriggja tíma lýjandi akstur.

Baldur, brúin til Vestfjarða, á sér langa sögu og er ferjan ein af elstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins. Saga Baldurs hófst fyrir 97 árum eða 1924 er Guðmundur Jónsson frá Narfeyri kaupir gamlan bát til flutninga á farþegum og vörum.

Ferjan sem er í notkun í dag var keypt notuð frá Noregi og keypt til að geta sinnt betur þungaflutningum. Ferjan á undan henni var keypt notuð frá Hollandi. Aðstaða fyrir farþega var mun betri í eldri ferju. Fyrir farþega er núverandi Baldur, hvað varðar aðstöðu og þægindi, líkt og að fara áratugi aftur í tímann. Gamaldags gluggalaus matsalur er niður í kili og gömul slitin óþægileg sæti undir brú. Núverandi Baldur stenst engan veginn nútímakröfur um þægindi í farþegaflutningum og er í engu samhengi við það að ferðaþjónusta er í dag mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Til hvaða þriðja heimsríkis ætli núverandi Baldur verði seldur, líkt og sá fyrri? Ný og nútímaleg Breiðafjarðarferja fyrir farþega og þungaflutninga er eðlileg afmælisgjöf fyrir 100 ára afmæli Baldurs árið 2024.

Samgöngur á Vestfjörðum, Vesturlandi og Norðurlandi vestra í dag endurspegla vannýtta möguleika NV-kjördæmis í ferðaþjónustu og eru ekki í samræmi við þær kröfur sem íbúar kjördæmisins geta með réttu gert til nútímasamgangna.

 

Eyjólfur Ármannsson

Höfundur er í 1. sæti á framboðslista Flokks fólksins í NV-kjördæmi.