Forvali jafnaðarmanna lokið

Guðjón S. Brjánsson og Inga Björk Bjarnadóttir

Nú hafa jafnaðarmenn í Norðvesturkjördæmi valið sér forystu fyrir alþingiskosningar 29. október nk. og við erum afar þakklát fyrir traustið sem okkur hefur verið sýnt.

Efst á baugi fyrir kosningar er að draga úr ójöfnuði í landinu. Um leið og almenningur er sannfærður um að ekki séu til nægir peningar til að reka hér gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi fyrir alla, menntastofnanir á öllum stigum eru sveltar og þrengt er að barnafjölskyldum hafa tekjustofnar ríkisins verið tættir niður. Þær skattalækkanir sem ráðist hefur verið í hafa ekki gagnast þeim sem mest þurftu á að halda og úrræði í húsnæðismálum skilið stóran hóp eftir með sárt ennið. Þá eru engar hækkanir til ellilífeyrisþega og öryrkja á fimm ára áætlun ríkisstjórnarinnar.

Á næsta kjörtímabili bíða stór verkefni og það allra mikilvægasta er að tryggja að allir hafi í sig og á, og jafnan aðgang að grunnstoðum samfélagins. Það er mikilvægt að jafnaðarmenn standi saman gegn þeim öflum sem vilja tryggja sérhagsmuni á kostnað almennings.

 

Guðjón S. Brjánsson og Inga Björk Bjarnadóttir.

Höf skipa 1. og 2. sæti á lista Samfylkingar jafnaðarmanna í NV kjördæmi.