
Fórum við of geyst?
Guðjón Pétursson
Borgarbyggð er frábært sveitarfélag. Hér fer saman falleg náttúra, friðsælt umhverfi og gott mannlíf, bæði í þétt- og dreifbýli. Við erum í dag heilsteypt og gott sveitarfélag en þó má alltaf betur fara.
Ég tel hins vegar að við séum farin að fara fram úr okkur í framkvæmdum sem við eigum hreinlega ekki fyrir og ættum að fara varlega þegar kemur að skuldsetningu sveitarfélagsins.
Við fögnum öll uppbyggingu og framförum, en skuldsetning sveitarfélagsins hefur aukist umfram það sem eðlilegt getur talist. Við erum komin fram úr okkur í skuldsetningu og með áframhaldandi lántökum lendum við í óæskilegri þróun sem getur haft slæm áhrif á framtíð sveitarfélagsins okkar.
Ef framtíð sveitarfélagsins á að vera í fyrirrúmi, eins of flestir telja, megum ekki skuldsetja sveitarfélagið langt umfram það sem við höfum efni á.
Á síðasta kjörtímabili til dæmis, hefur sveitarfélagið tekið á sig skuldbindingar sem ég tel ganga of langt. Það þarf ekki allt að gerast í einu. Uppbygging þarf að vera sjálfbær og byggð á traustum rekstri fremur en sífelldri lántöku.
Ef vel er haldið á rekstrinum ætti að vera hægt að ráðast í framkvæmdir á ábyrgari hátt og byggja sveitarfélagið upp, án þess að setja framtíð þess í óþarfa skuldafjötra.
Guðjón Pétursson
Höf. skipar ellefta sæti Miðflokksins í Borgarbyggð