
Fjölbreytni í sveitarstjórnum
Halla Signý og Lilja Rannveig
Þann 14. maí nk. verður kosið til sveitastjórna í landinu. Í dag eru nærri 70 sveitarfélög í landinu og stjórnsýsla sveitarfélaga er mikilvæg í lýðræðislegri ákvörðun um grunnþjónustu í því samfélagi sem stendur öllum íbúum landsins næst þar sem sveitarfélögin eru grundvallareining í stjórnskipan landsins. Það er því gríðarlega mikilvægt hverju sveitarfélagi að sveitarstjórnin endurspegli sem best íbúasamsetningu þess.
Í núgildandi byggðaáætlun kemur fram mikilvægi þess að auka þátttöku kvenna í sveitastjórnum og það þurfi að hvetja konur til þátttöku í stjórnum í nærsamfélaginu og í aðgerðaráætlun með byggðaáætlun er lögð áhersla á þennan þátt með því að fara í fræðslu- og auglýsingaherferð með þetta að markmiði.
Eftir síðustu sveitastjórnarkosningar var ásættanleg niðurstaða því að 47% sveitastjórnarfólks voru konur og hefur það aldrei verið hærra. Það er brýnt að viðhalda þeirri skiptingu í komandi kosningum.
Listar endurspegli fjölbreytni
Kvenréttindafélag Íslands, Innviðaráðuneytið, Fjölmenningasetrið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa hrint af stað framtaki sem kallað er Játak. Játak vekur athygli íbúa sveitarfélaga og þeim sem fara í forsvari til þess að huga að fjölbreytni og að standa vörð um rétt allra kynja og að komandi listar til framboðs í komandi sveitarfélögum spanni litróf mannlífsins í viðkomandi sveitarfélagi. Einnig þarf að huga að dreifingu fulltrúa í fjölkjarnasveitarfélögum.
Við erum svo heppin að mannlífið er fjölbreytt um allt land, til þess að nýta þann kraft og sköpunargleði sem felst í því þarf það að skila sér að ákvarðanatöku í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Ef þess er ekki gætt fer fljótt að gæta togstreitu á milli mismunandi skoðana og hætt er á að samkeppnisstaða samfélagsins verði ekki eins kröftug og þarf. Það er jú vilji allra sveitarfélaga að fólk vilji, geti og þrífist í samfélaginu.
Af hverju að taka þátt?
Viltu hafa áhrif á samfélagið þitt? Hefur þú hugmyndir og sýn sem varða uppbyggingu og tækifæri sveitarfélagsins? Að taka þátt í sveitastjórnum og nefndum eru vettvangurinn til þess. Það fylgir því mikil ábyrgð að taka þátt í stjórnmálum, en það getur líka verið ótrúlega gaman. Ef þú hefur áhuga þá hvetjum við þig til að íhuga framboð. Ef þú situr í uppstillinganefnd eða munt kjósa í prófkjöri þá hvetjum við þig til að huga að fjölbreytni á lista.
Halla Signý Kristjánsdóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Höf. eru tveir af þremur þingmönnum Framsóknar í NV