Farsæld verður ekki flokkuð

Ragnar B Sæmundsson

Þegar samkomulag ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir var undirritað 19. mars 2025 var talað um að eyða gráu svæðunum. Kristrún Frostadóttir forsættisráðherra sagði m.a að því tilefni: „Um leið bindum við enda á áratugadeilur um málefni barna með fjölþættan vanda.“

Samkomulagið fól í sér að ríkið tæki yfir framkvæmd og ábyrgð á fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Umrædd þjónusta hefur lengi verið bitbein í samskiptum ríkis og sveitarfélaga og var breytt ábyrgðaskipting í samræmi við tillögur starfshóps á vegum félags- og vinnumarkaðsráðherra frá því í september 2024.

Reglugerð nr. 700/2026 felur í reynd í sér einhliða riftun ríkisins á samkomulagi ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) frá 19. mars 2025. Í stað þess að ríkið yfirtæki að fullu framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þriðja stigs sólarhringsþjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir frá 1. janúar 2026, eins og samið var um, hefur regluverki verið breytt með þeim hætti að stór hluti barna með fatlanir er skilinn eftir utan þjónustu ríkisins og kostnaði og ábyrð þannig velt yfir á sveitarfélögin. Samhliða voru breytingar gerðar á úthlutunareglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, reglugerð nr. 1536/2025, með þeim afleiðingum að framlög vegna fatlaðra barna með fjölþættar stuðningsþarfir í þörf fyrir búsetu utan heimilis hafa verið stórskert.

Eitt barn, sem áður var með staðfestan fjölþættan vanda af hálfu sérfræðiteymis, var endurskilgreint og þar með vísað yfir á málaflokk fatlaðs fólks á ábyrgð sveitarfélagsins. Raunkostnaður vegna nauðsynlegrar sólarhringsvistunar barnsins í sértæku búsetuúrræði nemur 184.595.291 kr. á ári. Eftir að Jöfnunarsjóður samþykkti hámarksálag (sex viðbótarflokka) nema árleg framlög sjóðsins 36.800.000 kr. Framlag Jöfnunarsjóðs mætir þannig aðeins 19,5% af raunkostnaði vistunarinnar. Sveitarfélagið situr eftir með óbættan mismun upp á tæpar 148 milljónir króna á ári vegna þessa eina barns.

Sagan endurtekur sig – Traustið rofið

Fullyrðingar ráðuneytisins um að reglugerðin sé í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 stenst einfaldlega ekki skoðun. Samkomulagið markaði söguleg tímamót þar sem ríkið tók undanbragðalaust að sér fulla ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun á þjónustu við þennan afmarkaða hóp. Við undirritunina sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra: „Það er ánægjulegt að samkomulag hefur náðst um skiptingu ábyrgðar í málefnum barna með fjölþættan vanda. Verkefni sem hefur lagt þungar byrðar á mörg sveitarfélög.“

En þessi „ánægja“ ríkisins rann fljótt af þeim þegar kom að uppgjöri. Raunveruleikinn er sá að fjöldi barna, sem hafði áður fallið undir þá skilgreiningu sem samið var um, var strikaður út með einu pennastriki. Þetta er gróf efnisleg stefnubreyting og með öllu ótækt að ríkið endurskilgreini hópinn einhliða og komist að þeirri niðurstöðu að annað gildi í tilfellum barna með fjölþættar stuðningsþarfir, ef þau eru fötluð.

Þetta eru börn í þörf fyrir sértæk búsetuúrræði sem mæta þörfum þeirra og tryggja öryggi. Þau fullnægjandi úrræði eru ekki fyrir hendi og sveitarfélögum því áfram nauðugur sá kostur að fjármagna vistun þeirra í einkareknum úrræðum. Sá kostnaður hleypur á milljörðum sem sveitarfélögin þurfa áfram að standa undir.

Með mikilli einföldun má segja að ríkið „flokki“ börn nú með öðrum hætti og neiti ákveðnum hópi um þjónustu á þeim forsendum að stuðningur muni ekki draga úr þjónustuþörf til framtíðar. Það getur ekki talist ásættanleg nálgun. Það er því eðlilegt að sveitarfélögin setji þá lágmarks kröfu að reglugerð nr. 700/2026 verði endurskoðuð og að hún taki mið af raunverulegum þörfum barna en ekki hvort stuðningur við þau muni að endingu lækka útgjöld ríkisins. Hvar lenda sjónarmiðin um farsæld þessara barna í hentugleika flokkunarkerfi ríkisins?

Að bæta gráu ofan á svart

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkistjórnarinar er gert ráð fyrir að skera eigi niður í framlögum til sveitarfélaga vegna farsældar barna um 1,1 milljarði króna. Hafa skal í huga að hér er ekki um valkvæða þjónustu að ræða. Skuldbindingar sveitarfélaganna eru alveg skýrar í lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, ríkið ætlar bara einfaldlega að bakka út. Inga Sæland komst á þeim tímamótum svo að orði að hún treysti sveitarfélögunum fullkomlega til að standa undir samþættri þjónustu í þágu barna. Það er sér í lagi athyglisverð yfirlýsing, þar sem ákvörðunin gengur þvert gegn niðurstöðum nýlegrar stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar, sem benti sérstaklega á að innleiðingu farsældarlaganna væri ekki lokið og að frekari uppbygging þjónustukerfa væri nauðsynleg til að markmið laganna næðust.

Ég þori að fullyrða að lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafi nú þegar sannað gildi sitt. Til marks um það má nefna mikinn árangur í málaflokknum á Akranesi sem var eitt af fjórum frumkvöðla sveitarfélögum við innleiðingu laganna. Tölurnar tala sínu máli. 13,1% barna á Akranesi fá í dag þjónustu í þágu farsældar, og nær sex af hverjum tíu málum eru leyst á fyrsta stigi. Þar grípa tengiliðir í skólum og leikskólum börn og fjölskyldur snemma, áður en vandinn vex. Aðeins 1,3% allra barna þurfa á sérhæfðasta stuðningnum að halda. Svona á kerfið að virka. Á Akranesi hefur pýramídanum verið snúið við.

Sveitarfélagið hefur byggt þjónustuna upp með skólum, heilsugæslu, lögreglu og íþróttahreyfingunni. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa verið sveitarfélögum í fjórðungnum mikilvægur stuðningur við innleiðingu laganna og þó þau sveitarfélög séu komin misjafnlega langt í innleiðingarferlinu þá starfa þau öll sem eitt til samræmis við markmið laganna sem er; snemmtækur stuðningur.

Allt gengur þetta út á að tryggja börnum og foreldrum rétta aðstoð, á réttum tíma og með réttum aðilum með það að markmiði að mæta áskorunum barna svo þær vaxi ekki eða dýpki. Lögin og innleiðing þeirra eru að sjálfsögðu ekki gallalaus frekar en annað enda um mikla kerfisbreytingu að ræða, en þrátt fyrir það eru þau eitt stærsta framfaraskref sem tekið hefur verið í nálgun á velferðarþjónustu á undanförnum árum.

Öllum ætti að vera ljóst, sem fylgst hafa með þeim breytingum sem orðið hafa, að sá niðurskurður sem ríkistjórnin hefur nú kynnt í framlögðu fjárlagafrumvarpi, verður einungis skammgóður vermir. Sparnaður dagsins í dag mun margfalda kostnað inn í framtíðina á kostnað farsældar barna og fjölskyldna

Búsetufrelsi á pappír en fjárhagslegt þrot í raun

Það á að heita að við búum í samfélagi þar sem búsetufrelsi er tryggt og að fólk eigi rétt á sömu grunnþjónustu óháð því hvar það býr á landinu. Augljóst má vera að flokkunarkerfi ríkisins á börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og niðurskurður á framlögum til sveitarfélaga til að sinna snemmtækri íhlutun, muni í raun hafa búsetufrelsi að engu. Það er ljóst að mörg af minni sveitarfélögum landsins hafa hvorki fjárhagslega né faglega burði til að standa undir svo umfangsmikilli og sérhæfðri þjónustu.

Þegar eitt mál getur skekkt fjárhagsáætlun heils sveitarfélags um tugi eða hundruð milljóna króna, þá er kerfið einfaldlega hrunið. Með því að neita að standa við stóru orðin og fjármagna þjónustu við börn á landsvísu er ríkið að setja mörg sveitarfélög í óviðráðanlega stöðu á meðan önnur eru beinlínis þvinguð til að ráðast í sársaukafullan niðurskurð á grunnþjónustu.

Búsetufrelsi má aldrei verða happdrætti þar sem lífsgæði og öryggi barna með áskoranir ráðast af því hversu stór útsvarstofninn er í því sveitarfélagi sem barnið fæðist í eða þar sem fjölskylda þess ákveður að hafa dvalfesti.

 

Ragnar B. Sæmundsson

Höf. er oddviti Framsóknar og frjálsra á Akranesi, forseti bæjarstjórnar og formaður stjórnar SSV