Eru vinnuveitendur á móti fötluðum?

Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson

Mín upplifun er sú að það virðist vera mun auðveldara fyrir ófatlaðan einstakling að fá vinnu en fyrir fatlaðan. Til dæmis veit ég að margir ófatlaðir ganga auðveldlega úr einni vinnu í aðra, sem getur reynst fötluðum einstaklingum mun erfiðara. Það er óháð því að fatlaðir einstaklingar eru oft jafn duglegir og ófatlaðir einstaklingar. Til dæmis er hægt að horfa á Bitty & Beau’s Coffee sem er í Bandaríkjunum. Þar er fjallað um ófötluð hjón sem hafa einungis ráðið fatlaða einstaklinga til starfa hjá sér. Í viðtali við hjónin segja þau fatlaða einstaklinga vera mun duglegri og viljugri til að mæta til vinnu en ófatlaðir einstaklingar. Segir það ekki allt sem segja þarf?

En hvað hafa vinnuveitendur á móti fötluðum einstaklingum? Af hverju er þá mun einfaldara fyrir ófatlaðan einstakling að fá vinnu heldur en fyrir fatlaðan? Hefur það eitthvað með fötlun að gera eða eru vinnuveitendur hræddir við fatlaða einstaklinga? Mér finnst að vinnuveitendur ættu að gefa fötluðum einstaklingum mun fleiri starfstækifæri og að útiloka okkur ekki sem duglegan og mikilvægan starfskraft.

Daníel Guðrúnarson Hrafnkelsson