Erasmus+  ævintýrið heldur áfram, nú er það 3D

Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Í febrúar síðastliðnum lauk 18 mánaða verkefni Grunnskólans í Borgarnesi um þrívíddarprentun. Við vorum samstarfsaðili Základní Škola Karla Jeřábka í Roudnice nad Labem í Tékklandi í þessu verkefni. Verkefnið var styrkt af fræðsluáætlun Evrópusambandsins úr sjóði um menntun og rannsóknir og bar heitið:  Education in 3D printing.  (2024-1,-CZ0 1-KA2 10-SCH-000245202).

Verkefnið tókst á allan hátt mjög vel. Heimasíða verkefnisins er á tékknesku en við notum auðveldlega þýðingarapp til að vinna með hana https://3d48.webnode.page/contact/ .  Vegleg 80 blaðsíðna handbók um þrívíddarprentun, á íslensku, ensku og tékknesku, er afrakstur verkefnisins. Þar er útskýrt í skrefum ferlið við að hanna og prenta 18 nytjahluti, auk kennslu á hönnunarforrit. Handbókin er aðgengileg á heimasíðunni okkar, https://borgarbyggd.is/stofnun/grunnborg   Þar er einnig ítrarlegri umfjöllun um 3D verkefnið. Handbókinni fylgja einnig kennslumyndbönd.

Verkefnið varð hvatning til þess að á undanförnum mánuðum hefur orðið mikil vakning í þrívíddarprentun hér í skólanum. Boðið hefur verið upp á þrívíddarpentun sem valgrein, auk þess sem haldið var námskeið fyrir kennara.  Kennarar eru margir hverjir að vinna verkefni tengd þrívíddarprentun með sínum nemendum og Sigurður Jónsson kennari hefur leiðbeint og aðstoðað eftir því sem þurfa þykir. Kennarar á miðstigi hafa hannað og þrívíddarprentað ýmsar þrautir sem eru bæði þeim og nemendum til ánægju. Skólinn eignaðist nýverið tvo nýja þrívíddarprentara.  Tilkoma þeirra mun styrkja starfið okkar enn frekar.

Hér fylgir mynd af nemendum okkar sem sóttu félaga sína í tékkneska skólanum heim í maí í fyrra. Þar var unnið að sameiginlegum 3D verkefnum, auk þess að skoða sig um.

Erasmus+  verkefnin stækka svo sannarlega sjóndeildarhringinn og gefa nemendum okkar og starfsfólki tækifæri til að tileinka sér nýja þekkingu og reynslu.

 

Hulda Hrönn Sigurðardóttir