Er ferðaþjónusta besta tækifærið?

Bjarnheiður Hallsdóttir

Vissir þú að Akranes er eitt allra minnsta ferðaþjónustusvæði á Íslandi? Það er staðreynd.

Innan við 2% atvinnutekna Akurnesinga árið 2023 áttu uppruna sinn í ferðaþjónustu. Að auki má sterklega reikna með að þau störf sem þar um ræðir, séu flest staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Til samanburðar má geta þess að tæplega 26% atvinnutekna Akurnesinga má rekja til iðnframleiðslu.

Það liggur fyrir að atvinnulíf á Akranesi mætti vera mun umfangsmeira og fjölbreyttara og bjóða upp á fleiri atvinnutækifæri. Það er tiltölulega hátt hlutfall bæjarbúa sem sækir vinnu utan bæjarfélagsins. Auðvitað er það eðlilegt í mörgum tilfellum, en þó er það kristaltært að við þurfum að skjóta sterkari stoðum undir atvinnustarfsemi í bænum, fjölga þar með eggjunum í körfunni, auka seiglu samfélagsins og styrkja tekjugrunn sveitarfélagsins á sjálfbæran hátt.

Af hverju ferðaþjónusta?

Eins og flestir vita, þá hefur ferðaþjónusta á Íslandi síðastliðin 15 ár eða svo, vaxið upp í það að verða stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Hún hefur bætt lífskjör Íslendinga svo um munar og það sem meira er, stuðlað að jákvæðri byggðaþróun, auðgað atvinnu- og mannlíf á landsbyggðinni og gefið brothættum byggðum byr undir báða vængi.

Akranes hefur af mörgum ástæðum, sem ekki verða raktar hér, setið eftir í þessari þróun – þrátt fyrir kjöraðstæður til uppbyggingar þessarar atvinnugreinar.

Nú er að margra mati hins vegar kominn tími til að snúa blaðinu við og taka til hendinni, svo Akranes geti tekið þátt í ferðaþjónustuævintýrinu. Það besta er að þetta getur gerst tiltölulega hratt, ef vel er á spöðum haldið.

Af hverju er það mikilvægt og skynsamlegt?

Öflug ferðaþjónusta skapar bein störf við greinina sjálfa – fjölbreytt störf, sem henta mörgum hópum samfélagsins. Sem dæmi má nefna að 50-60 herbergja hótel myndi þýða um 30 ný störf af allskyns tagi. En öflug ferðaþjónusta gerir ekki bara það – heldur eru margföldunaráhrif hennar gríðarleg og seytla um allt kerfið. Þannig nýtur önnur atvinnustarfsemi í bænum góðs af umferð og neyslu ferðamanna – má þar nefna veitinga- og kaffihús, byggingafyrirtæki, iðnaðarmenn, verslanir og þjónustu, arkitekta, hönnuði, golfvelli- og herma og ótal margt fleira. Síðast en ekki síst skapar umferð ferðamanna tækifæri fyrir framtakssamt fólk til að skapa eitthvað nýtt til að til að bjóða bæði ferðamönnum og heimamönnum. Þannig hagnast samfélagið allt af þeim umsvifum sem ferðaþjónustan kemur með inn á svæði, bæi og borgir.

Hvað getur Akraneskaupstaður gert?

Það er ekki hlutverk sveitarfélagsins að reka ferðaþjónustufyrirtæki. Hins vegar getur kaupstaðurinn tekið skýra afstöðu: Við ætlum að byggja upp ferðaþjónustu í bænum. Við ætlum að marka raunhæfa stefnu og tímasetta aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu og undirbúa þannig jarðveginn fyrir einkaframtakið. Við viljum skapa aðstæður, sækja fram, styðja við, hvetja, finna lausnir, flækjast ekki fyrir, gera bæinn meira aðlaðandi, kynna hann markvisst – og ganga þar með í lið með einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja stíga inn og taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu á Akranesi. Nákvæmlega það vill D-listinn á Akranesi gera – og stuðla þannig að fjölbreyttari atvinnutækifærum í bænum, sterkari tekjugrunni og síðast en ekki síst skemmtilegra Akranesi.

 

Bjarnheiður Hallsdóttir

Höf. skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi