
Er ekki kominn tími á smá sóknarleik?
Hrafn Ágúst Björnsson
Það er hressandi og um leið spennandi fyrir ungan mann að leiða lista Miðflokksins hér á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Hingað á Skagann flutti ég fyrir fimm árum, þá rétt liðlega tvítugur, eftir að hafa kynnst konunni minni sem hér er fædd og uppalin og tók ekki í mál að flytja til Reykjavíkur. Hér höfum við stofnað heimili, enda frábært að búa á Akranesi í þessu þétta og samheldna samfélagi og hér viljum við vera til framtíðar.
En um leið fer maður óneitanlega að velta fyrir sér möguleikunum hér á Akranesi; hvernig þeir eru nýttir og hvað mætti betur fara. Ég heyri á unga fólkinu hér í bænum að það vill nýta enn frekar þau tækifæri sem felast í nálægðinni við náttúruna og um leið fjarlægðinni frá Reykjavíkurvæðingunni sem kvartað er yfir í mörgum sveitarfélögum um þessar mundir. Akurnesingar vilja ekki elta ofurþéttingarstefnu, heldur sækja fram á kostum þess að búa milli fjalls og fjöru, í nálægð við einstaka náttúru. Að setja eigi markið hátt til framtíðar og að Akranes eigi að verða besti bær á Íslandi til að búa á, sama á hvaða æviskeiði maður er.
Það er háleitt markmið, en er það nokkuð fjarlægt? Víða um heim blómstra bæjarfélög í nálægð við borgirnar, þar sem fólk nýtur þess að ala upp börnin sín fjarri mesta skarkalanum. Það eru lífsgæði sem við Skagamenn eigum að rækta vel að börn geti hér leikið sér áhyggjulaus og íþrótta- og útivistarsvæðin séu öllum aðgengileg. En þá þarf að hafa bæinn fallegan, innviðina í lagi og að fólk finni kröftum sínum farveg.
En til þess að Skagamenn fari aftur að skora mörkin eins og í gamla daga, þarf bæjarfélagið að snúa úr vörn í sókn og fara að sækja fram. Bæjarbúar sem ég hef rætt við, fólk á öllum aldri, nefnir að það sé orðið leitt á eilífum varnarleik bæjarins í atvinnumálum, rekstrarmálum og samgöngumálum, svo dæmi séu tekin. Skagamenn vilja fara að sækja og skora mörkin og þar er ég hjartanlega sammála.
Á lista Miðflokksins á Akranesi er fjölbreyttur hópur fólks með víðtæka reynslu og á öllum aldri. Við viljum sækja fram og teljum að bæjarstjórnin hefði gott af breytingum. Það er alltaf hollt að hleypa nýju fólki að, fá nýjar hugmyndir og virkja kraftinn í þeim sem vilja byggja hér upp gott samfélag til framtíðar.
Tækifærið er núna og ég óska eftir stuðningi bæjarbúa til að hrinda nauðsynlegum breytingum í framkvæmd.
Hrafn Ágúst Björnsson
Höf. er oddviti Miðflokksins á Akranesi