Er bæjarstjórn Akraness að mismuna börnum vegna búsetu?

Elín Ósk Gunnarsdóttir

Ný gjaldskrá sundlauganna á Akranesi vakti athygli mína á dögunum. Þar til um síðastliðin áramót var frítt fyrir öll börn upp að 16 ára aldri í sund en á fundi bæjarstjórnar Akraness í desember sl. var samþykkt ný gjaldskrá fyrir árið 2026. Við þá breytingu þurfa 10-15 ára börn sem ekki eru búsett á Akranesi að borga 355 krónur fyrir sundferðina, en þau sem búa á Akranesi fá áfram frítt. Í gjaldskránni má ekki sjá mismunun annarstaðar en fyrir þennan ákveðna hóp, hóp sem að mínu mati getur verið í viðkvæmri félagslegri stöðu, t.d. vegna eineltis og útilokunar jafnaldra sinna.

Ég hef verið mjög hugsi yfir þessu síðastliðnar vikur. Ég skil ekki alveg hver hugsunin er á bakvið þetta hjá Skagamönnum, að láta börnin borga, að mismuna með þessum hætti.

Það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum að bæjarstjórn Akraness og Vilhjálmur Birgisson vilja að Hvalfjarðarsveit borgi fyrir að nota þeirra innviði. En er rétt að gera það með þessum hætti?

Börn í Hvalfjarðarsveit eiga vini á Akranesi og fara oft með þeim í sund. Hvaða skilaboð er verið að gefa þessum börnum þegar t.d. fimm vinir fara saman í sund og einn eða tveir þeirra þurfa að borga ofaní en hinir ekki? Eru starfsmenn að spyrja öll börn sem fara í sund hvar þau búa? Finnst bæjarstjórn Akraness í lagi að auðvelda einelti, útskúfun og aðskilnað barna á Akranesi og Hvalfjarðarsveit?

Við í Hvalfjarðarsveit búum vissulega ekki yfir jafn stórum og miklum íþróttamannvirkjum og Akraneskaupstaður en þau eru þó til staðar og standa öllum opin. Hópar af Akranesi hafa verið duglegir að nýta sér íþróttasalinn í Heiðarborg nokkrum sinnum í viku og töluvert er um að foreldrar af Akranesi komi með börnin sín í sund sem er frábært. Það er frábært að sjá aukna nýtingu á okkar íþróttamannvirkjum hvort sem notendur komi úr nágrannasveitarfélögum eða Hvalfjarðarsveit.

Að lokum vil ég benda okkar góðu nágrönnum á álit innviðaráðuneytisins, mál nr. IRN22010877 frá 27. júní 2023 vegna mismunar á gjaldtöku notenda af sundlaug og íþróttamiðstöð að Borg í Grímsnesi. Í samandreginni niðurstöðu má m.a. lesa eftirfarandi: ,,Í áliti þessu eru reifuð þau sjónarmið sem gilda um ólögbundin verkefni sveitarfélaga og gjaldtökuheimildir þeirra. Þá eru reifaðar þær grundvallarreglur sem gjaldtaka sveitarfélaga verður að byggja á, svo sem jafnræði og meðalhóf.

Að mati ráðuneytisins er gjaldskrá sveitarfélagsins Grímsness- og Grafningshrepps vegna aðgangs í sundlaug og íþróttamiðstöðina Borg sem rekin er af sveitarfélaginu ekki í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og er því ólögmæt.“

 

Elín Ósk Gunnarsdóttir

Höfundur er þriggja barna móðir og sveitarstjórnarfulltrúi í Hvalfjarðarsveit.