
Ég er í framboði!
Viktor Elvar Viktorsson
Af hverju gætu einhverjir spurt sig? Af hverju fer maður eins og ég í framboð? Er einhver eftirspurn eftir hvítum miðaldra karlmanni með skotvopnaleyfi sem finnst gott að borða lambahrygg og safnar stundum mottu í mars?
Ég er Skagamaður í húð og hár og hef fylgst með bænum mínum þróast í 40 ár. Ég hef séð hvernig ákvarðanir sem hafa verið teknar hafa breytt bæjarmyndinni. Stundum til góðs – stundum ekki.
Í mínu tilfelli þá er það margt sem kemur til. Áhugi á bæjarmálum og stjórnmálum verið til staðar lengi. Ég hef alltaf fylgst vel með pólitískri umræðu og þekkti ráðherra með nöfnum strax í grunnskóla. Ég hef tamið mér að segja ekki nei ef ég er beðinn um að gera eitthvað sé þess kostur, takast á við nýjar áskoranir. Það er svo miklu skemmtilegra að ögra sér með því að taka að sér verkefni sem þroska mann og gefa vonandi öðrum betra líf. Það er miklu auðveldara að segja nei og halda svo bara áfram að horfa á Gísla Martein.
Við búum í góðu samfélagi, við erum um margt heppin á Akranesi og mig langar innilega af leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að halda áfram að byggja upp sterkt og gott samfélag. Kjörnir fulltrúar eiga að aðstoða og þjónusta íbúa og fyrirtæki sveitarfélagsins í því að gera þeim lífið eða reksturinn auðveldari. Við eigum að stuðla að aukinni uppbyggingu atvinnutækifæra með því að hafa tiltæka innviði svo hægt sé að hefja störf hér í bæ. Einnig eigum við að hafa hér allt til alls fyrir fólk sem vil setjast hér að og byggja sér þak yfir höfuðið. Við eigum ekki að hamla því að fólk vilji viðhalda eignum sínum né að koma í veg fyrir að góðar hugmyndir verði að veruleika.
Ég hef reynslu af fjölbreyttum stjórnarstörfum úr íþróttahreyfingunni þar sem ég hef setið í stjórn Knattspyrnunnar hér á Akranesi, stjórn Golfklúbbsins Leynis og stjórn Golfsambandsins. Ég hef einnig setið í foreldrafélagi Vallarsels og skólanefnd FVA á nokkrum rósturstímum. Ég er menntaður tölvunarfræðingur frá HR auk þess sem ég hef lokið námi í Húsasmíðið frá FVA. Ég starfaði í nær 25 ár sem tölvunarfræðingur og að hluta til sem stjórnandi en er í dag hamingjusamur húsasmiður! Reynsla mín er því fjölþætt og mun nýtast Akranesi vel ef ég hlýt brautargengi þann 16. maí nk.