Eflum íþrótta- og tómstundastarf í Borgarbyggð

Svana Hrönn og Sumarliði Páll

Íþrótta- og tómstundamál er mikilvæg starfsemi í sveitarfélögum. Í samtölum við íbúa Borgarbyggðar hefur komið skýrt fram að fólk hefur fjölbreyttar skoðanir á þessum málaflokki. Þó ekki sé hægt að hrinda öllum hugmyndum í framkvæmd er okkur mikilvægt að hlusta – á börn, ungmenni og fullorðna – og byggja stefnu okkar á raunverulegri reynslu og þörfum samfélagsins. Í Borgarbyggð er boðið upp á gott íþróttastarf og ungmennafélögin innan Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) vinna ágætt starf. Þrátt fyrir það teljum við að með markvissara samstarfi sé hægt að gera enn betur.

Þátttaka barna og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi hefur verið talsvert til umræðu, en árið 2024 stunduðu 72,4% barna á aldrinum 6–16 ára íþróttir í Borgarbyggð – lægsta hlutfall á Vesturlandi. Á Akranesi, sem eru næst okkur, eru 77% barna á sama aldri í íþróttum og er landsmeðaltalið 79,6%. Þessar tölur sýna að staðan hér er ekki góð og kallar á aðgerðir.

Ástæður þess að foreldrar veigra sér við að senda börn sín í skipulagt íþrótta- og tómstundastarf geta verið margar, en kostnaðurinn vegur þungt. Iðkendagjöld, keppnisfatnaður, ferðalög og mót geta samanlagt numið hundruðum þúsunda króna á ári fyrir hvert barn. Þetta er raunveruleg hindrun fyrir fjölmargar fjölskyldur. Frístundastyrkurinn getur skipt sköpum, en í Borgarbyggð hefur hann nánast staðið í stað og ekki fylgt verðlagsþróun síðast liðin ár. Þetta bitnar beint á barnafjölskyldum og dregur úr möguleikum barna til þátttöku. Mikilvægi þess að börn stundi fjölbreytta hreyfingu snemma á lífsleiðinni er óumdeilt. Góður hreyfiþroski stuðlar að betri heilsu, vellíðan og sterkari félagsfærni. Tækifærin í sveitarfélaginu eru til staðar – nú þarf að tryggja að börnin hafi raunverulegan aðgang að þeim.

Á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er að létta róðurinn fyrir barnafjölskyldur á kjörtímabilinu. Þar á meðal er að hækka frístundastyrk barna og þrepa¬skipta honum eftir aldri. Við viljum einnig efla samstarf Borgarbyggðar, UMSB og aðildarfélaganna þannig að það verði öflug lyftistöng fyrir íþróttaiðkun í sveitarfélaginu. Þá viljum við vinna með Listaskóla Borgarfjarðar til að tryggja að fleiri börn hafi tækifæri til að stunda skapandi nám.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að eitt sameiginlegt gjald verði fyrir börn í 1.–4. bekk, þannig að þau geti prófað og iðkað fjölbreyttar íþróttir og tómstundir án þess að kostnaður verði hindrun, án þess að börnin þurfi að velja á milli íþrótta. Með því að efla UMSB og samvinnu aðildarfélaganna viljum við tryggja að iðkendagjöld fyrir yngstu börnin verði einföld, sanngjörn og jöfn – og að öll börn í Borgarbyggð og Skorradalshreppi hafi sömu tækifæri.

Markmið Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og Skorradalshreppi er skýrt: að fjölga börnum og ungmennum sem taka þátt í íþróttum og tómstundum og byggja þannig upp sterkara, heilbrigðara og samheldnara samfélag.

 

Svana Hrönn, skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og Skorradalshreppi

Sumarliði Páll, skipar 12. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og Skorradalshreppi