Efla vitund um mikilvægi umhverfis og náttúru

Bryndís Geirsdóttir

Hver hreppur á öndvegisfólk, fólk sem telur ekki eftir sér að vinna gagn og er næmt á verðleika sveitarinnar og samfélagsins. Stjórn Sólar til framtíðar er skipuð slíku fólki og í gærkvöldi fékk hún endurnýjað umboð félagsmanna til góðra verka á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Samkomuhúsinu við Þverárrétt. Ótalmörg verkefni vann félagið á liðnu ári til að efla vitund um mikilvægi umhverfis og náttúru og til að stemma af gegn glórulausum áformum um vindorkuver í okkar dýrmætu sveitum.

Yfirborðssamráðið sem sveitarstjórn hefur haft um þessar miklu framkvæmdir dýpkar enn það vantraust sem grafið hefur um sig gagnvart stjórnsýslunni í Borgarbyggð. Afleitt og hreint ekki til eftirbreytni ef sátt á að ríkja um uppbyggingu orkuinnviða á Íslandi.

Eða er kannski sérstakt stefnumál stjórnvalda að steypa samfélaginu í illindi og ófrið? Hvað á sú aðför yfirvalda að þýða sem Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðar nýverið, að hóta að uppræta eignarrétt landeigenda sem ekki ætla að lúta yfirgangi lukkuriddara í gróðabraski og leggja land sitt undir þeirra einkahagsmuni?

Þróttur samfélagsins byggir á andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð einstaklinganna sem byggja það. Tilfinningin fyrir að við höfum stjórn á eigin aðstæðum eykur lífslíkur og velferð okkar og afkomenda okkar og er grunnur þess öryggis sem hagsæld og viðgangur sveitarinnar byggir á.

Sveitunga mína hvet ég til að leggja lið þeirri brýnu baráttu sem samtökin hafa leitt fyrir mikilsverðum málstað af miklum sóma.

Ég þakka upplýsandi og skemmtilegan fyrirlestur Páls Jakobs Líndal og fróðlegar almennar umræður sem spunnust í fundarlok. Þakkarvert er einnig kaffið og heimabaksturinn sem minnir mann á hlýjuna og atlætið sem maður hefur notið af uppeldinu í góðri sveit.

 

Bryndís Geirsdóttir,

Hvanneyri