
Dásamlegur aðalfundur – Látum verkin tala!
Katrín Oddsdóttir
Undirituð stjórnaði aðalfundi Stjórnarskrárfélagsins 17. desember síðastliðinn. Þar var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma af fundargestum:
„Það er fagnaðarefni fyrir þjóðina að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að ráðast í stjórnarskrárbreytingar.
Landsmenn búa við hættulega óskýra og úrelta stjórnarskrá. Við því dugar enginn bútasaumur.
Heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar fór fram eftir bankahrunið 2008 þegar þjóðin samdi sér nútímalega stjórnarskrá sem stendur traustum fótum í stjórnskipunarhefð Íslands eins og hún birtist í stjórnarskránni frá árinu 1944.
Nýja stjórnarskráin hlaut yfirgnæfandi stuðning kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu (67%) sem Alþingi boðaði til 20. október 2012.
Alþingi hefur ekki enn virt úrslit atkvæðagreiðslunnar. Það er svartur blettur á þjóðþingi Íslendinga sem er tímabært að afmá.
Nú er lag að taka tillögurnar sem samþykktar voru sem grundvöllur nýrrar stjórnarskrár og afgreiða þær af heilindum og virðingu við kjósendur og úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Í tilmælum til íslenskra stjórnvalda frá Feneyjanefnd Evrópuráðsins árið 2020 er útlistað hvað í því felst. Þar segir, að yrði vikið efnislega frá því sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 þyrftu stjórnvöld að gefa almenningi gegnsæjar, skýrar og sannfærandi ástæður fyrir því.
Virðing við grundvallarreglur lýðræðis og víðtæk sátt meðal almennings er það sem skiptir máli. Ósætti um stjórnarskrárbreytingar milli stjórnmálaflokka á Alþingi má ekki standa í vegi fyrir brýnum hagsmunum og lýðræðislegum vilja almennings. Þannig hafa nauðsynlegar breytingar á stjórnarskrá einmitt náð fram að ganga.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og Alþingi standa frammi fyrir sögulegu tækifæri.
Stjórnvöld geta strax hafist handa og þjóðin fengið sína nýju og endurskoðuðu stjórnarskrá þegar haldið verður upp á ellefuhundruð ára afmæli Alþingis árið 2030.
Katrín Oddsdóttir
Höf. er lögmaður og stjórnarmaður í Stjórnarskrárfélaginu.