Byggjum og náum niður vöxtum og verðbólgu

Eyjólfur Ármannsson

Ríkisstjórnin hefur gert lítið sem ekkert til að auka framboð á húsnæði til að mæta hinni gríðarlegu eftirspurn á tímum fordæmalausrar íbúafjölgunar. Okkur hefur fjölgað um 15% frá 2017. Um 1.200 íbúðir i Grindavík hurfu vegna eldsumbrotanna á Reykjanesi. Til að ná niður verðbólgu og vöxtum er gríðarlega mikilvægt að tryggja nægt framboð á húsnæði um allt land fyrir lág- og millitekjufólk og fyrstu kaupendur.

Heimili og fyrirtæki geta ekki búið við vaxtabyrði sem byggir á 8,5 % stýrivöxtum. Skuldsett heimili bera byrðar verðbólgunnar með stórkostlegum hækkunum afborgana húsnæðislána. Þá hafa bankar tekið upp á því að hækka vexti verðtryggðra lána, eftir því sem stýrivextir lækka, og halda þannig uppi okrinu gagnvart fólki sem flúði óverðtryggðu lánin þegar vextir losnuðu og tóku sér verðtryggð lán. Byrðum af baráttunni við verðbólguna er misskipt og stórkostleg eignatilfærsla á sér stað með gríðarlega háa vaxtastigi. Lág- og millitekjufólk, ungt fólk og skuldsett heimili, bera þar byrðar verðbólgunnar en ekki skuldlaust eignafólk og fjármagnseigendur.

Byggjum meira húsnæði

Fara þarf í stórátak í byggingu húsnæðis í landinu til að mæta hinni gríðarlegur eftirspurn vegna hinnar miklu fólksfjölgunar og húsnæðismissis í Grindavík. Einungis með stórauknu framboði á húsnæði næst jafnvægi á húsnæðismarkaðnum.

Svipað átak þarf og þegar stjórnvöld, verkalýðshreyfing og atvinnurekendur tóku höndum saman með Júnísamkomulagsinu 1964 og uppbygging Breiðholts hófst. Þá fyrst náðist að útrýma braggahverfum í Reykjavík og tryggja tekjulágu fólki öruggt húsnæði, tuttugu árum eftir stríðslok. Fráfarandi ríkisstjórn mistókst að glíma við rót verðbólgunnar sem er framboðsskortur á húsnæði fyrir venjulegt fólk.

Húsnæðismál eru eitt helsta forgangsmál Flokks fólksins. Undir yfirskriftinni Húsnæði fyrir alla viljum við að byggt verði upp nýtt húsnæðislánakerfi þar sem lögð er áhersla á fasta óverðtryggða vexti á langtímalánum og tryggjum þannig fyrirsjáanleika. Brjótum nýtt land til uppbyggingar húsnæðis í Úlfarsárdal, Keldnaholti og Blikastaðalandi til að binda enda á húsnæðisskort. Sama verði gert á landsbyggðinni eftir þörfum.

Flokkur fólksins mun gera húsnæðismál að forgangsmáli eftir kosningar. Kjósum húsnæði fyrir alla. Fólkið fyrst – og svo allt hitt!

Eyjólfur Ármannsson,  oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi