Brotthvarf Baldurs skaðar ferðaþjónustu á Vestfjörðum

Halldóra Ingibjörg Ragnarsdóttir

Vorið er þegar næturnar verða bjartar og farfuglarnir koma hver af öðrum og gleðja mann og annan.  Vorið er líka sá tími sem ferðamenn verða sýnilegri, sérstaklega í dreifðari byggðum landsins.  Þetta vorið voru sunnanverðir Vestfirðir heppnir í veðurlottóinu, gott veður dag eftir dag, sem er nú ekki sjálfgefið. Ferðamönnum fjölgaði hratt svo ferðaþjónar voru bjartsýnir fyrir komandi sumri, búnir að undirbúa sig og ráða sumarstarfsfólk. Var þetta vel merkjanlegt á fjölgun farþega og bíla með ferjunni Baldri. Tugir bíla fluttir fram og til baka og enn var bara byrjun júní.  Þetta var óvenju snemmt.  Sumaráætlun að detta í gang og ferðum fjölgað, laugardagar komu inn í áætlun, siglt var fyrsta laugardag í júní, sem reyndist líka vera sá síðasti um óákveðinn tíma.  Herjólfur bilaði og Baldur kallaður til.  Var hann meira að segja látinn sigla til Vestmannaeyja á sjálfan sjómannadaginn, sem er alla jafnan heilagasti frídagur sjómanna, sem áhöfn Baldurs jú er.

Auðvitað héldu menn að Herjólfur væri stopp því neyðin var svo mikil.  En nei, hann var bara á annarri vélinni og gat því ekki bætt áttundu ferðinni við, yfir daginn, eins og sumaráætlun sagði til um.  En hann sigldi samt sjö ferðir á dag.  Þannig að Baldur átti að vera til aðstoðar í hálfan mánuð, ef hin vélin bilaði eða vindaði, því það voru svo stórar helgar framundan, farþegalega séð.  Það átti að skila honum aftur svo hann gæti hafið siglingar aftur á sinni leið 19. júní.  En nei, enn var von á mörgum farþegum svo Baldur var kyrrsettur í Eyjum fram í miðjan júlí, sem er nú frekar opin dagsetning. Við þessa ákvörðun þurftu Ferjuleiðir, rekstaraðili Baldurs, að hafa samband við alla sem áttu bókað far og endurgreiða þeim sem voru búnir að borga og aflýsa öllum ferðum á Breiðafirði fram í miðjan júlí. Næsta sem fréttist er að siglingar eigi að hefjast 24 júlí, á Breiðafirði.  Ef það stenst, að Baldur hefji áætlunarsiglingarnar aftur á Breiðafirði þann 24. júlí, þá verður búið að fella niður samtals 63 ferðir yfir fjörðinn, á háannatíma sumarsins.

Við brotthvarf Baldurs úr siglingum á Breiðafirðinum hófust dómínósáhrif hjá ferðaþjónum.  Ferðamenn koma ekki með ferjunni og afbóka gistingu víðsvegar í stórum stíl, bæði á sunnanverðum Vestfjörðum sem og á Snæfellsnesi, því farþegar fara jú í báðar áttir.  Skipta afbókanir eflaust hundruðum, sem hefur gífurleg áhrif á rekstur þessara aðila sem verða fyrir þessu. Svo hefur þetta líka áhrif á að ferðamenn bóka ekki gistingu heldur, því óvíst er hvenær siglingar hefjast. Og ekki er séð fyrir endann á því. Þess má geta að þrjá mánuði á ári siglir Baldur án ríkisstyrkja; júní, júlí og ágúst og á þá að hafa tekjur af ferðamönnum, sem hann jú hefur að vísu, bara ekki á sinni siglingaleið.

Staðreyndin er sú að flutningur farþega með Baldri fór rækilega úr skorðum í Covid, sem og allt annað tengt ferðamannabransanum, á þeim tíma. Hefur verið á brattann að sækja hjá ferjunni síðan þá.  Nýir rekstraraðilar tóku við fyrir ári síðan og hefur það ár verið strembið.  En byrjun þessa vors lofaði svo sannarlega góðu og var gífurleg aukning farþegaflutninga.  En það var í raun klippt á fullt skip þegar kallið kom frá yfirvaldinu. Mjög líklegt er að þetta hafi alvarlegar afleiðingar þegar fram í sækir, því hver á að treysta því hvort Baldur sigli á Breiðafirðinum eða ekki?  Sagt er að það sé hægt að keyra til Vestfjarða, sem er jú satt, en hvernig á að útskýra fyrir erlendum ferðamönnum, sem bóka ferð mánuði fram í tímann, að Baldur þurfi að fara til Vestmannaeyja því Eyjamenn þurfa frekar á ferðamönnum að halda en Vestfirðingar?

Svo eru það Flateyingar, þeir þurfa nánast að reiða sig á rigninguna til vatnsöflunar, það eru þó að vísu einhverjar siglingar frá Stykkishólmi þangað. En Vestfirðingar eða ferðamenn frá Vestfjörðum hafa ekkert þangað að gera, því ekki er nein áætlunarsigling héðan til Flateyjar.  Þó er það nú svo að rafmagnsframleiðsla í Flatey er þjónustuð frá Orkubúi Vestfjarða og urðu menn á þeirra vegum strandaglópar úti í Flatey þegar Baldur þurfti að fara til Vestmannaeyja. En er ekki staðreyndin sú að Herjólfur hefur varla fellt niður ferð frá því Baldur fór að sigla líka, allavega ekki margar.

Að það skuli endalaust vera í fréttum að allt sé svo frábært í Vestmannaeyjum, ferðaþjónustan blómstri því Baldur og Herjólfur sameina krafta sína fyrir Eyjamenn, þetta hleypir illu blóði í fólk fyrir vestan og gerir ekkert annað en að strá salti í sárin, og eru þau eru stór hjá ferðaþjónum á Vestfjörðum.

 

Halldóra Ingibjörg Ragnarsdóttir, Brjánslæk