Brátt hækkar sól

Sigurður Ingi Jóhannsson

Þau lýsa fegurst,

er lækkar sól,

í blámaheiði

mín bernsku jól.

Ljóð Stefáns frá Hvítadal sem ber einfaldlega heitið Jól hefur alltaf verið mér hugleikið og þá einnig einstaklega fallegt lagið sem Jórunn Viðar samdi við það. Það er í því einhver tærleiki og fegurð barnæskunnar og barnatrúarinnar.

Aðventan er venjulega líflegur tími hjá okkur flestum. Vinir og fjölskyldur hittast og gera sér glaðan dag og á flestum vinnustöðum er hefð fyrir einhvers konar jólagleði. Árið í ár verður frábrugðið því sem við eigum að venjast vegna baráttunnar við veiruna. Þær skorður sem veiran setur okkur varðandi félagslíf eru vissulega íþyngjandi en eru nauðsynlegar til að vernda líf og heilsu fólks.

Viðbúin bjartari dögum

Það er hins vegar ekki aðeins félagslíf okkar sem breytist því fjölmargir, fólk og fyrirtæki, hafa orðið fyrir alvarlegu höggi vegna veirunnar. Ríkisstjórnin hefur brugðist við því með fjölmörgum aðgerðum til að skapa viðspyrnu fyrir Ísland. Ríkissjóður stóð vel vegna ábyrgrar stjórnunar síðustu ár og getur því betur tekið á sig auknar byrðar tímabundið með skuldsetningu. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem síðast voru kynntar eiga að stuðla að öflugri viðspyrnu þegar heimurinn opnast að nýju. Hlutabótaleiðin verður framlengd til sumars, atvinnuleysisbætur hækkaðar, boðið upp á fleiri félagsleg úrræði og boðið upp á sérstaka viðspyrnustyrki sem hafa það að markmiði að þekkingin hverfi ekki úr fyrirtækjunum með uppsögn lykilstarfsfólks, að fyrirtækin verði ekki lömuð þegar við loks lítum bjartari daga. Sérstökum ívilnunum verður einnig beitt til að auka kraft og fjárfestingu í einkageiranum sem er nauðsynlegt til að skapa störf og auka verðmætasköpun í samfélaginu.

Þessar aðgerðir ríma við það sem ég sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra: Verkefni okkar í stjórnmálunum næstu mánuði væri skýrt: atvinna, atvinna, atvinna. Við þurfum að vernda störf og skapa störf. Þar erum við í Framsókn á heimavelli því saga okkar er samofin atvinnuuppbyggingu landsins. Það er í kjarna flokksins að þekkja mikilvægi þess að hafa vinnu, að skilja sjálfstæðið sem felst í því að hafa trygga atvinnu, að vita hvað það er átakanlegt að vera án vinnu og án tekjuöryggis.

Fleiri sterkar greinar

Þótt ég sé kannski ekki mjög aldraður maður, hef ég lifað þá tíð að horfa uppá íslenskt efnahagslíf rísa og hníga til skiptis. Það mun halda áfram. En ég er búinn að átta mig á því að það er beinlínis óskynsamlegt að treysta of mikið á eitthvað eitt. Við þurfum að fjölbreytt atvinnulíf. Við þurfum að styðja við nýjar greinar en hlúa áfram að rótgrónari atvinnuvegum. Eitt á ekki að útiloka annað. Við verðum að byggja á samvinnu, málamiðlunum og árangri. Við finnum leiðir.

Mér þykir það augljóst að styðja verður dyggilega við íslenska matvælaframleiðslu, hvort heldur hún felst í því að yrkja jörðina, rækta búpening eða veiða fisk. Það er mikilvægt að standa vörð um matvælaöryggi og þá framleiðslu sem er hér á landi. Það er ekki síður mikilvægt að við breikkum þann grundvöll sem verðmætasköpun á Íslandi stendur á. Ég hef einnig nefnt mikilvægi þess að styðja við vöxt skapandi greina og þá sérstaklega nefnt til sögunnar kvikmyndagerð og tölvuleikjagerð. Það er eftirspurn eftir íslenskri sköpun og í skapandi greinum búa mikil tækifæri.

Eftir vetur kemur vor

Ég óska þér, lesandi góður, gleðilegra jóla og vona að þú finnir leið til að njóta aðventu og hátíðar við þessar einkennilegu aðstæður. Fréttirnar sem okkur berast þessa dagana af bóluefnum gefur okkur von um að með vorinu sjáum við aftur glitta í eðlilegt líf. Veturinn verður erfiður fyrir marga en með krafti samfélagsins, með krafti samvinnunnar þá mun hann verða auðveldari. Og eftir vetur kemur vor og þá verðum við vonandi aftur farin að faðma fólkið okkar og getum horft grímulaus fram á veginn.

Ég sé þær sólir,

mín sál er klökk

af helgri hrifning

og hjartans þökk.

Lýstu þeim héðan

er lokast brá,

heilaga Guðsmóðir,

himnum frá.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson

Höf. er formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.