Börn og gjaldfrjálst sund

Haraldur Benediktsson

Í morgun birtist aðsend grein á vef Skessuhorns undir yfirskriftinni „Er bæjarstjórn Akraness að mismuna börnum vegna búsetu?“ eftir Elínu Ósk Gunnarsdóttur sveitarstjórnarfulltrúa í Hvalfjarðarsveit.

Í grein sinni segir Elín frá nýlegri ákvörðun bæjarstjórnar Akraness þess efnis að 10-15 ára börn sem búa á Akranesi muni sem fyrr fá frítt í sund, en jafnaldrar þeirra sem búa utan sveitarfélagsins muni greiða 355 krónur fyrir sundferðina.

Með þessari ákvörðun valdi bæjarstjórn Akraness að fara sambærilega leið og önnur sveitarfélög víða um land hafa þegar gert, til að mynda Borgarbyggð, Hveragerði, Reykjanesbær, Múlaþing, Skagafjörður og Vestmannaeyjar svo dæmi séu tekin. Ástæðan er fyrst og fremst sú að á Akranes kemur fjöldi barna í sund árið um kring. Mörg þeirra eru ferðamenn eða gestir í bænum. Rekstur sundlauga er kostnaðarsamur og sum sveitarfélög hafa kosið að fara þá leið að öll börn greiði fyrir sundferð eftir ákveðinn aldur. Það er ekki í takt við það heilsueflandi samfélag sem Akranes er og vill vera. Því var tekin ákvörðun um að hefja gjaldtöku, en að íbúar á aldrinum 10-15 ára njóti 100% afsláttar. Sveitarfélög hafa farið ólíkar leiðir í að útfæra þennan afslátt. Í Borgarbyggð fá börn svokallað Heilsukort sem þau framvísa í sundi og í Reykjanesbæ fá þau fyllingu á árskort.

Ekki er búið að útfæra leiðina sem farin verður hér á Akranesi og gjaldtaka er því ekki hafin. Útfærslan sem verður fyrir valinu verður kynnt vel þegar þar að kemur. Rétt er að undirstrika að ákvörðunin var að engu leyti tekin með okkar góðu nágranna í Hvalfjarðarsveit í huga umfram aðra og Akraneskaupstaður er sannarlega tilbúinn til samtals vilji sveitarfélög finna sérstakar leiðir fyrir sína íbúa.

 

Með vinsemd og virðingu,

Haraldur Benediktsson

Höf. er bæjarstjóri Akraneskaupstaðar