
Borgarbyggð fyrir okkur öll – English below
Jovana Pavlović
Borgarbyggðarlistinn byggir stefnu sína á þeirri sýn að rekstur sveitarfélagsins eigi fyrst og fremst að snúast um íbúa; að búa fólkinu sem hér býr bestu mögulegu skilyrði svo það geti viðhaldið og bætt heilsu sína, líðan og lífsgæði á öllum æviskeiðum. Við lítum á samfélagið sem heild þar sem tengsl, samkennd og samábyrgð skipta máli. Þess vegna liðast lýðheilsa niður alla okkar stefnuskrá eins og vatnsstraumur á fallegum sumardegi. Hún snýst ekki bara um hreyfingu og heilbrigðisþjónustu heldur um allt það sem umvefur okkar daglega líf. Eins og það hvernig börnunum okkar líður í skólanum, hvernig umhverfi og vegakerfi er skipulagt og hvort fólk hafi þak yfir höfuðið.
Í skólamálum leggur Borgarbyggðarlistinn áherslu á aðbúnað barna, að þeim líði vel og þau upplifi sig örugg í samfélaginu. Við viljum auka sveigjanleika í leikskólaþjónustu svo hún endurspegli betur fjölbreyttar aðstæður foreldra. Það vinna ekki allir hefðbundinn 8 til 16 vinnudag og því teljum við mikilvægt að foreldrar hafi aukið svigrúm til að ákveða hvernig þeim sex stunda gjaldfrjálsa dvalartíma leikskólans sé ráðstafað. Borgarbyggðarlistinn styður einnig áframhaldandi uppbyggingu og endurbætur á skólahúsnæði og þarf umhverfi nemenda á öllum skólastigum að vera heilsusamlegt, með góðri hljóðvist og loftgæðum. Við viljum stefna að því að auka hlutfall fagmenntaðs fólks innan skólanna, bæði kennara og sérfræðinga, þannig að nemendur og starfsfólk hafi aðgengi að sálfræðingum, talmeinafræðingum og félagsráðgjöfum, svo dæmi sé tekið, án þess að þurfa að bíða eftir þjónustu þeirra í marga mánuði. Þá viljum við auka bókakost skóla, það getum við t.d. gert með því að efla skólabókasöfn. Með því að efla aðgengi að fjölbreyttu og góðu lesefni öðlast börn tækifæri til að finna bækur, sem vekja áhuga þeirra og styðja þannig við læsi og málþroska.
Í skipulagsmálum viljum við byggja samfélag þar sem íbúar geta haft áhrif á umhverfi sitt. Kynna þarf aðalskipulag betur fyrir íbúum og að þau fái aukin tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þegar samþætta þarf t.d. aðalskipulag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Öll stjórnsýsla og ákvarðanir sveitarfélagsins þurfa að vera gegnsæjar. Sem dæmi má nefna skipulag í Brákarey, þar sem einum aðila var veitt óvenjulegt svigrúm til að móta rammaáætlun, án þess að ljóst væri hvernig það samræmdist markmiðum um gagnsæi og aðkomu íbúa. Skipulag í Brákarey á að byggja á heildarhagsmunum samfélagsins og því teljum við að áform um hótel og baðlón eigi að endurskoða.
Hvað húsnæðis- og velferðarmál varðar þá er það stefna Borgarbyggðarlistans að íbúar eigi að hafa aðgang að fjölbreyttu húsnæði; almennu húsnæði, heilbrigðum leigumarkaði, félagslegum íbúðum og óhagnaðardrifnum leigufélögum t.d. í samvinnu við verkalýðsfélög.
Í tómstunda- og íþróttamálum: Fyrir utan einföld, en góð, verkefni eins og að skipuleggja og halda utan um græn svæði þar sem íbúar geti hist, hreyft sig og notið þannig nærumhverfi síns þá vill Borgarbyggðarlistinn fjölga ferðum tómstundarútu í dreifbýlinu, auka fjármagn við íþrótta- og tómstundastarfs og endurskoða opnunartíma sundlauga á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Borgarbyggðarlistinn vill ennfremur efla menningarlíf. Við viljum að í sveitarfélaginu sé húsnæði, samvinnurými sem tileinkað verði samveru, listum og nýsköpun íbúa. Tungumálið er einnig mikilvægur menningararfur og lykilatriði inngildingar. Við leggjum áherslu á að efla íslenskuna og styðja við þá sem eru að læra hana meðal annars með aukinni samvinnu og samtali við atvinnulífið. Gera þarf fólki kleift að læra íslensku sem annað tungumál samhliða vinnu og ekki þannig að starfsfólk verði að vinna upp fjarveru á öðrum tíma. Fólk af öðrum uppruna en íslenskum leggur mikið á sig þegar það ákveður að læra íslensku sér til gagns til að mynda með það fyrir augum að fá vinnu sem hæfir þeirra menntun og reynslu. Að vera virk í eigin samfélagi á til dæmis sterka skírskotun til lýðheilsu.
Þau atriði sem hér hafa verið upptalin endurspegla með hvaða hætti Borgarbyggð – er fyrir okkur öll! Þess vegna set ég X við A í sveitarstjórnarkosningunum í Borgarbyggð 16. maí nk.
Jovana Pavlović
Höf. er oddviti Borgarbyggðarlistans
Borgarbyggð for everyone
The political part Borgarbyggðarlistinn bases its policy on the vision that the operation of the municipality should first and foremost revolve around its residents: to provide the people who live here with the best possible conditions to maintain and improve their health, well-being, and quality of life at every stage of life. We view the community as a whole, where connection, solidarity, and shared responsibility matter. In that sense, public health flows through our entire policy like a stream on a beautiful summer day. It is not only about exercise and healthcare, but about everything that surrounds our daily lives, such as how our children feel at school, how our environment and road systems are planned, and whether people have a roof over their heads.
In education, Borgarbyggðarlistinn emphasizes children’s well-being, ensuring they feel safe and supported within the community. We want to increase flexibility in preschool services so they better reflect the diverse circumstances of parents. Not everyone works a standard 8to16 schedule, and we therefore believe it is important that parents have greater freedom to decide how the six hours of free preschool time are allocated. Borgarbyggðarlistinn also supports continued development and improvement of school facilities, ensuring that students’ environments at all levels are healthy, with good acoustics and air quality. We aim to increase the proportion of qualified professionals within schools, both teachers and specialists, so that students and staff have access to psychologists, speech-language pathologists, and social workers without having to wait months for services. We also want to expand the availability of books in schools, for example by strengthening school libraries. By improving access to diverse and high-quality reading materials, children gain the opportunity to find books that spark their interest, thereby supporting literacy and language development.
In urban planning we want to build a community where residents can influence their surroundings. The municipal plan must be better introduced to residents, and they should have more opportunities to express their views, for example when integrating the plans of Borgarbyggð and Skorradalshreppur. All governance and decisionmaking within the municipality must be transparent. A case in point is the planning of Brákarey, where a single party was granted unusual latitude to shape a framework plan, without it being clear how this aligned with goals of transparency and public participation. Planning in Brákarey should be based on the overall interests of the community, and we therefore believe that proposals for a hotel and a bathing lagoon should be reconsidered.
In housing and welfare, it is the policy of Borgarbyggðarlistinn that residents should have access to diverse housing options: general housing, a healthy rental market, social housing, and non-profit housing associations, for example in cooperation with labor unions.
In leisure and sports: beyond simple but important tasks such as maintaining green spaces where residents can meet, exercise, and enjoy their local environment, Borgarbyggðarlistinn wants to increase bus services in rural areas, increase funding for sports and leisure activities, and review opening hours of swimming pools at Kleppjárnsreykir and Varmaland.
Borgarbyggðarlistinn also seeks to strengthen cultural life. We want a facility within the municipality, a shared space dedicated to community, the arts, and innovation. Language is also an important cultural heritage and a key element of inclusion. We emphasize strengthening Icelandic and supporting those who are learning it, through increased cooperation and dialogue with the labor market. People must be enabled to learn Icelandic as a second language alongside their work, without having to make up for that time later. People of non-Icelandic origin make a significant effort when they choose to learn Icelandic for their own benefit, for example to obtain employment that matches their education and experience. Being active in one’s own community has a strong connection to public health.
The points outlined above reflect how Borgarbyggð is for all of us.
That is why I will vote X for A in the municipal elections in Borgarbyggð on May 16.
The author is the lead candidate of Borgarbyggðarlistinn.