
Árangur og leikgleði á afreksíþróttasviði FVA
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir
Á afreksíþróttasviði í FVA voru núna á vorönn 38 nemendur sem stunduðu átta íþróttagreinar; fimleika, keilu, knattspyrnu, körfuknattleik, golf, sund, klifur og hnefaleika. Á afreksíþróttasviðið sækja afreksíþróttanemendur víðs vegar að af landinu og eiga kost á að dvelja á heimavist á meðan á námi stendur.
Fyrirkomulagið er þannig að nemendur sækja tvær æfingar í viku hjá íþróttafélagi, mæta í styrktarþjálfun einu sinni í viku í FVA og fá bóklega kennslu á sviði afreksíþrótta einu sinni í viku. Þau sem stunda sund og knattspyrnu æfa á Jaðarsbökkum en þau sem stunda golf æfa á Garðavöllum. Í íþróttahúsinu við Vesturgötu stunda iðkendur fimleika, körfuknattleiks og keilu sínar æfingar. Bókleg kennsla og styrktaræfingar fara fram í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum. Á önninni voru alls 12 starfsmenn við þjálfun og kennslu á afreksíþróttasviði og verkefnastjóri er Hildur Karen Aðalsteinsdóttir sem heldur utan um hópinn.
Nemendur fengu m.a. fræðslu frá Daða Rafnssyni, fagstjóra afrekssviðs MK. Hann er doktorsnemi í íþróttasálfræði og stundakennari við Háskólann í Reykjavík. Erindi hans bar yfirskriftina: „Af hverju er mikilvægt að þjálfa hugann eins og líkamann – og hvernig vinnum við að því að styrkja sjálfstraust okkar?“ Fyrirlesturinn vakti áhuga og umræðu meðal nemenda enda fjallaði hann um andlega þjálfun sem ómissandi þátt í vegferð afreksíþróttafólks.
Þá vinnur verkefnastjóri með tveimur öðrum forsvarsmönnum afreksíþróttasviða framhaldsskóla. Þar er markmiðið að efla enn frekar tengsl milli skólanna ásamt því að fylgja eftir vinnu hópsins frá síðasta skólaári um eflingu afreksíþrótta í landinu í gegnum afreksíþróttasvið framhaldsskólanna. Stefnt er á samvinnu við fleiri skóla á haustönn.
Fundað var með starfsfólki barna- og menntamálaráðuneytis og starfsmönnum frá afrekssviði ÍSÍ. Þar var farið yfir efni frá kynningar- og samráðsfundi á vegum ráðuneytisins um umgjörð og stöðu nemenda í afreksíþróttum í framhaldsskólum á Íslandi. Brýnt málefni sem er verið að vinna heilmikið í þessa dagana.
Alþjóðleg ráðstefna um snemmtæka afreksvæðingu í íþróttum barna og ungmenna var haldin af RIG, ÍSÍ og UMFÍ í janúar. Verkefnastjóri, ásamt tveimur starfsmönnum sviðsins, sótti ráðstefnuna fyrir hönd FVA. Þar komu saman alþjóðlegir sérfræðingar til að fjalla um nýjustu rannsóknir og ræða hvernig megi stuðla að afreksþjálfun án þess að fórna leikgleði og andlegri vellíðan ungs íþróttafólks, t.d. eins og hvenær íþróttasérhæfing ætti að hefjast og hvernig byggja megi upp heilbrigt íþróttaumhverfi fyrir börn og ungmenni.
Helstu niðurstöður sérfræðinganna undirstrikuðu mikilvægi þess að skapa jafnvægi milli árangurs og vellíðunar í íþróttastarfi barna og ungmenna. Það er markmiðið á afrekssviði í Fjölbraut þar sem nemendur fá svigrúm til að eflast í sinni íþróttagrein um leið og námið er stundað af kappi.
Á haustönn er á dagskrá að fara m.a. í heimsókn í HR og bregða á leik í leiðinni og svo erum við búin að bjóða FSN í heimsókn.
Hægt er að kynna sér allt um afrekið á vef FVA, https://fva.is/namid/namsbrautir/afreksithrottir/.
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir
Höf. er verkefnastjóri afreksíþróttasviðs FVA