
Almannavarnir og björgunarþyrlur
Jóhannes Finnur Halldórsson
Þrír skipverjar fórust og fjórtán var bjargað á lífi þegar Jökull ÞH 299 sökk úti fyrir Austfjörðum. Slysið hefur vakið á ný umræðu sem staðið hefur árum saman um þyrlukost Landhelgisgæslunnar og samstarf við nágrannaþjóðir um leit og björgun. Bæði hvað hefði átt að vera búið að gera, og hvað við þurfum að gera til framtíðar. Þessi umræða er búin að vera viðvarandi í mörg ár. Samstarf við aðrar þjóðir hefur verið mikið inni í þeirri mynd.
Ef…
Hefði þjóðin samþykkt að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju hefði Ísland getað sett eflingu almannavarna á dagskrá og leitað eftir fjárhagslegu framlagi til sameiginlegrar leitar- og björgunargetu á Norður-Atlantshafi. Hvort slíkt framlag hefði fengist hefði ráðist af verkefninu, reglum viðkomandi sjóða og samkomulagi við ESB. Byggðaþróunarsjóður ESB styrkti til dæmis uppbyggingu þyrlusjúkraflutninga í Króatíu. Á Möltu komu evrópskir sjóðir til landamæragæslu að fjármögnun þyrlu sem sinnir bæði eftirliti og leit og björgun. ESB fjármagnar einnig kaup á slökkviþyrlum í sameiginlegum viðbragðsforða sínum, rescEU.
Fyrst svo fór…
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst höfnuðu 52,8% þeirra sem tóku afstöðu því að aðildarviðræður yrðu teknar upp að nýju. Ég tel að það hafi verið mistök. Nú þurfum við að kanna hvaða samstarf og fjármögnun standa Íslandi til boða á grundvelli EES-samningsins og annarra samninga. Framkvæmdastjórn ESB fjallaði um þátttöku Íslands í almannavarnakerfi sambandsins í 27. kafla framvinduskýrslu sinnar árið 2011. Í 22. kafla, um byggðamál, lagði Ísland áherslu á einangrun landsins, erfið veðurskilyrði og strjálbýli. Þessi sömu atriði skipta máli þegar björgunarviðbúnaður er skipulagður.
Í slíkum viðræðum hefði Ísland getað lagt fram tillögu um þátttöku ESB í kaupum á björgunarþyrlum, uppbyggingu starfsstöðva og þjálfun áhafna. Röksemdin hefði verið sú að viðbúnaður á Íslandi gæti einnig nýst nágrannaríkjum við stórslys á Norður-Atlantshafi. Þá hefði þurft að semja um hvenær ríkin gætu kallað eftir aðstoð hvert annars og hver bæri kostnaðinn.
Samstarf sem Ísland getur nýtt nú þegar
Ísland tekur þegar þátt í almannavarnakerfi ESB á grundvelli EES-samningsins. Þar gefast tækifæri til sameiginlegra æfinga, þjálfunar og sérfræðingaskipta. Landhelgisgæslan tók einnig þátt í NAMRO, verkefni sem fékk stuðning frá Interreg til að samræma verklag við fjöldabjörgun á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Þar unnu meðal annars saman aðilar frá Íslandi, Færeyjum, Noregi, Bretlandi og Írlandi.
Ísland hefur líka gert sérstakan samning við ESB um þátttöku í sjóði Schengen-samstarfsins fyrir landamæravörslu. Reglur hans heimila styrki til búnaðar fyrir landamæraeftirlit sem einnig má nota við leit og björgun þegar neyð kemur upp við eftirlit á sjó. Það afmarkar hvaða hluti af þyrluverkefni gæti komið til greina hjá þeim sjóði.
Nú þegar ákveðið hefur verið að staðsetja fjórðu þyrluna á Akureyri þarf að tryggja rekstur hennar til langs tíma og meta hvort fimmta þyrlan sé nauðsynleg. Samhliða eigum við að leggja fyrir nágrannaríkin tillögur um sameiginlegar björgunaræfingar og kanna hvort þau séu reiðubúin að taka þátt í fjármögnun viðbúnaðar á Norður-Atlantshafi.
Jóhannes Finnur Halldórsson, cand. oecon, Akranesi