
Aldrei of varlega farið í umhverfismálum
Áskell Þórisson
Ég tel mig fylgjast sæmilega með fréttum fjölmiðla en hvergi hef ég séð því slegið upp að 50.000 tonna magnesíum- og klórframleiðsla sé líklega að sjá dagsins ljós á Grundartanga og henni fylgi umtalsverð hætta á mengun. Sveitarstjórnin okkar hefur verið ósköp settleg í umfjöllun um þetta stórfyrirtæki. RÚV hreifst af því að vinna eigi magnesíum úr sjó með nýrri aðferð. Mörgum finnst afar merkilegt að nota sjóinn sem hráefni en spá minna í það hvernig framkvæma á verkið og mögulegum afleiðingum.
Ég minnist ekki neinna greinaskrifa núverandi sveitarstjórnar um að fara varlega. Og ég man ekki eftir að sveitarstjórn hafi boðað til almenns borgarafundar um magnesíum verksmiðju sem mér sýnist að ekki sé neinn engill í heimi náttúruverndar. Reyndar má segja hið sama um mögulegt fiskeldi á Grundartanga sem mun dæla gríðarlegu magni af úrgangi í Hvalfjörð.
Hafró segir að frárennsli magnesíum verksmiðjunnar geti haft áhrif á lífríki Hvalfjarðar, Náttúrufræðistofnun er efins og Vinnueftirlitið sömuleiðis. Getur verið að í heimi stóriðju sé talað um Hvalfjörð sem úrvals stað fyrir mengandi verksmiðjur og sveitarstjórn sem þvælist ekki fyrir? Erlend fjárfestingarfyrirtæki eru almennt ekki með miklar áhyggjur af lífríki Hvalfjarðar en traustið sem við Frónbúar sýnum þeim er aftur á móti umtalsvert. Ég hef séð peningaglampa í augum samlanda minna þegar erlendir fyrirlesarar og agentar af þessum toga hafa lokið máli sínu og slökkt á myndvarpanum. Ég hræðist þennan glampa sem yfirleitt drepur síðustu glæður skynsemi og varfærni.
Ég vona að núverandi sveitarstjórn horfi á íslenska náttúru í Hvalfirði með ást og umhyggju síðustu vikurnar sem hún situr við völd. Það er ekki seinna vænna því mér hefur fundist sveitarstjórn hafi ekki sýnt mikla umhverfisást í verki. En mun næsta sveitarstjórn sýna umhverfinu virðingu? Svo sannarlega vona ég það. Íbúahreyfingin hefur í það minnsta markað sér ábyrga stefnu í umhverfismálum. Þetta felst m.a. í því að íbúar sveitarfélagsins taki þátt í og móti stefnur sem hafa og geta haft veruleg áhrif á líf við Hvalfjörð.
Það er margtuggið að við eigum ekki landið en erum með það að láni frá börnum okkar. Þau munu ekki hrífast af forfeðrum sínum ef fiskurinn í Hvalfirði er flúinn á brott, eða steindauður, vegna mengunar.
Víst er það rétt að við verðum að tryggja fólki atvinnu en það má ekki gerast á þann hátt að hleypa hverju sem er á Grundartanga. Mengun vægir engu lífi og það er full ástæða til að hafa áhyggjur af áhrifum á sjó og lífríki. Styrkur í atvinnumálum felst ekki síst í litlum og meðalstórum fyrirtækjum en stjórnmálamenn eru flestir hrifnari af stórum gímöldum sem sum hver fá að rannsaka sjálf eigin mengun.
Það væri ekki óvitlaust ef sveitarstjórnin sem nú situr segði okkur frá stefnu sinni í umhverfismálum. Ég vildi sannarlega fá útskýringu á ýmsu sem hefur á daga okkar drifið síðustu fjögur árin. Það þarf að skrá það. Má vera að hennar síðasta verk verði að panta nýtt skilti í stað þess sem nú stendur við veginn að Grundartanga.
Áskell Þórisson
Höf. býr á Ægissíðu og skipar 7. sæti á lista Íbúahreyfingarinnar

Skiltið við veginn að Grundartanga