
Afi ég ætla að segja já
Jóhannes Finnur Halldórsson
„Afi, ég ætla að segja já“
Barnabarn mitt kom í heimsókn fyrir skömmu og sagði við mig:
„Afi, ég ætla að segja já.“
Ég spurði hvers vegna.
„Vinkona mín keypti íbúð fyrir nokkru. Hún er búin að greiða um fimm milljónir af láninu en skuldin hefur ekkert lækkað. Svo heyri ég suma segja nei vegna þess að viðræðurnar eigi að kosta svo mikið.“
Þarna hitti hún naglann á höfuðið. Unga fólkið okkar finnur kostnað íslenska vaxta- og verðtryggingarkerfisins á eigin skinni. Það greiðir milljónir án þess að komast nær því að eignast heimilið sitt. Samt er helst talað um kostnaðinn við að kanna hvort Íslandi bjóðist betri framtíð í nánara Evrópusamstarfi. Samkvæmt kostnaðaráætlun utanríkisráðuneytisins er líklegur kostnaður 1.895 milljónir króna.
Kostnaður skiptir vissulega máli. En þá verðum við að ræða allan kostnaðinn – ekki aðeins þann sem hentar málstaðnum.
Nýlega var hlutafé Þórsmerkur, móðurfélags Árvakurs sem gefur út Morgunblaðið, aukið um 600 milljónir króna. Samkvæmt samantekt DV hafa eigendur lagt félögunum til um 1,6 milljarða að nafnvirði á síðasta áratug, eða um tvo milljarða á núvirði. Það er þeirra réttur að verja fjármunum sínum þannig. En Morgunblaðið hefur jafnframt verið einn háværasti andstæðingur þess að Ísland haldi aðildarviðræðum áfram og varar mjög við kostnaðinum.
Þá vaknar einföld spurning: Hvað kostar að kanna til hlítar hvort við getum bætt kjör almennings – og hvað kostar að gera það ekki?
Með því að segja já 29. ágúst erum við ekki að samþykkja óþekktan aðildarsamning. Við erum að samþykkja að ljúka viðræðum, fá niðurstöðu og leggja hana síðan í dóm þjóðarinnar. Þá getum við tekið ákvörðun á grundvelli staðreynda í stað ótta og ágiskana.
Barnabarn mitt þarf ekki langar ræður til að skilja hvað er í húfi. Hún horfir á vinkonu sína greiða milljónir inn á íbúðalán sem lækkar ekki.
Hún hugsar um framtíð sína og sinnar kynslóðar.
Þess vegna segir hún JÁ.
Og þess vegna segi ég líka JÁ.
Jóhannes Finnur Halldórsson,
Höfundur er eldri borgari, Íslendingur og Evrópubúi.