Aðgerðir í þágu heimilanna

Elsa Lára Arnardóttir

Í gær fór fram opinn fundur um húsnæðismál. Þar voru húsnæðisfrumvörp félags- og húsnæðismálaráðherra til umræðu. Á fundinum fór undirrituð yfir þær breytingar sem nefndarmenn velferðarnefndar hefur gert á frumvörpunum og almennt yfir stöðu málanna í nefndinni.

Fundurinn var afar vel sóttur og hægt er að segja að sú góða mæting hafi svo sannarlega verið hvatning til að halda áfram að vinna vel að húsnæðismálunum. Það er að klára, núna fyrir þinghlé, 3. umræðu almennra félagsíbúða, frumvarp um auknar húsnæðisbætur og breytingar á húsaleigulögum. En öll þessi vinna er í fullum gangi innan velferðarnefndar. Unnið er að því að auka húsnæðisöryggi allra landsmanna. Það að einstaklingar og fjölskyldur hafi raunhæft val um búsetuform. Hvort þeir kjósi að búa á leigumarkaði, í eigin húsnæði eða í húsnæðissamvinnufélagi. Þessi verk, sem önnur sýna að heimilin hafa svo sannarlega ekki gleymst í verkefnum ríkisstjórnar Framsóknar– og Sjálfstæðisflokksins.

Á næstu dögum mun félags- og húsnæðismálaráðherra kynna fimmta frumvarpið um húsnæðismál og snýst það m.a. um breytingar á fjármálamarkaði.

Þessu tengt þá langar mig að minnast á að undanfarna daga hafa fjölmiðlar verið að spyrja þingmenn spurninga um hvort við styðjum að kosningar verði í haust.

Ég hef svarað því þannig að persónulega finnist mér ekki tímabært að ákveða kjördag. Mikilvægt væri að horfa til þeirra verkefna sem ríkisstjórnin var kosin til að vinna að. Má þar m.a. nefna húsnæðismálin sem ég fjallaði um hér að framan. Jafnframt þarf að klára aðgerðir er varða verðtrygginguna og endurbætur á almannatryggingakerfinu. Auk þessa þarf að fara í endurbætur á löggjöf um fæðingarorlof, það er að hækka greiðslur og lengja fæðingarorlofið. Þetta eru þau brýnu verkefni sem horfa þarf til og klára.

Þegar þeim er lokið er tímabært að ganga til kosninga. Hvort sem það er í haust eða síðar.

Þessi grein er byggð upp á ræðu minni í Störfum þingsins, þann 25. maí 2016.

 

Elsa Lára Arnardóttir

Höf. er þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar.