
Aðgengismál í skötulíki í Borgarbyggð
Ragnar Gunnarsson
Það hefur lengi staðið til hjá mér að gera úttekt á aðgengi fyrir hreyfihamlaða í Borgarnesi, sérstaklega P-merktum bílastæðum. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér hef ég komist að þeirri niðurstöðu að einfaldara sé að nefna þá örfáu aðila sem komast nálægt því að hafa þessi mál í ásættanlegu standi.
Sjálfur er ég með P-merki. Ég er þó svo lánssamur að þurfa ekki hjólastól og get oft bjargað mér. En það eru ekki allir svo heppnir. Ég hef enn ekki fundið fyrirtæki í Borgarbyggð þar sem aðgengi fyrir fatlað fólk er að öllu leyti fullnægjandi. Ábendingar eru vel þegnar ef ég fer rangt með.
Lög og reglur eru til staðar
Í 6.2.4. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 segir: „Bílastæði hreyfihamlaðra skulu vera sérstaklega merkt á yfirborði og einnig með lóðréttu skilti.“ Þar segir einnig: „Hindrunarlaus leið skal vera frá bílastæðum hreyfihamlaðra að aðalinngangi byggingar.“ Í sömu grein eru ákvæði um stærð, staðsetningu og fjölda stæða. Reglurnar eru því til staðar, þótt meta þurfi hvaða kröfur gildi um hvert mannvirki, meðal annars með hliðsjón af aldri þess.
Á N1 í Borgarnesi eru rúmgóð P-stæði, en óþarfur þröskuldur við aðaldyr getur hindrað för fólks í hjólastól. Salernið sem ætlað er hreyfihömluðum er svo þröngt að ógerningur er að snúa þar við í hjólastól. Hvaða gagn er að góðu bílastæði ef fólk kemst ekki hindrunarlaust inn eða getur ekki nýtt salernið?
Við Dirty Burger er illa merkt stæði ofan á frárennslisbrunni með tilheyrandi ólykt. Við Bónus og Nettó eru stæðin þröng og illa merkt. Þetta eru aðeins nokkur dæmi og eðlilegt að spyrja hvort stæðin uppfylli þær kröfur sem um þau gilda.
Þó ber að hrósa því sem vel er gert. Við Skemmuna á Hvanneyri, sem er 126 ára gamalt timburhús, hefur verið komið fyrir myndarlegum rampi. Þar hefur greinilega verið lögð vinna í að bæta aðgengi, þó enn megi gera betur þar. Ef hægt er að gera slíkt við gamalt timburhús, hvers vegna reynist það svo erfitt annars staðar?
Sveitarfélagið verður að ganga á undan með góðu fordæmi
Alvarlegast þykir mér ástandið við byggingar Borgarbyggðar. Við íþróttamiðstöðina er rúmgott P-stæði, en aðeins eitt og illa merkt. Við grunnskólann og leikskólana eru stæðin lítil eða þröng. Við sjálft ráðhúsið er P-stæðið illa merkt, alltof lítið og gangstéttarkantur torveldar aðkomuna. Ráðhúsið ætti þó að vera til fyrirmyndar.
En hver ber ábyrgð á eftirlitinu?
Í 4. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki segir orðrétt: „Sveitarstjórn ber ábyrgð á að stjórnsýsla og eftirlit byggingarfulltrúa sé í samræmi við ákvæði laga þessara.“ Í 1. gr. sömu laga er eitt markmiðanna: „Að tryggja aðgengi fyrir alla.“
Þetta þýðir ekki að sveitarfélagið þurfi sjálfkrafa að skoða hvert gamalt stæði reglulega eða að nýjustu kröfur gildi afturvirkt. En byggingareftirlit er lögbundið verkefni.
Hefur Borgarbyggð kannað hvort P-stæði við fyrirtæki og opinberar byggingar uppfylli gildandi kröfur?
Hafa eigendur fengið ábendingar um ágalla og hefur þeim verið fylgt eftir?
Þessum spurningum á sveitarfélagið að svara opinberlega.
Enn alvarlegra er að í sveitarfélaginu skuli vera þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk sem eru ekki einu sinni aðgengilegar fólki í hjólastól. Í 1. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir segir: „Við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði.“ Hvernig samræmist óaðgengilegt húsnæði þeirri grundvallarhugsun?
Nú þarf að framkvæma
Mér er sama hvaða stjórnmálaflokkar fara með völd í Borgarbyggð. Aðgengi fyrir alla er ekki flokkspólitískt mál. Ég skora á sveitarstjórn að láta gera heildstæða úttekt á aðgengi, birta niðurstöðurnar og leggja fram áætlun um úrbætur. Jafnframt óska ég svara um hvernig sveitarfélagið hefur sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu.
Það er ekki nóg að mála hjólastólamerki á malbikið. Það þarf að vera hægt að nota stæðið, komast inn í bygginguna og nýta þjónustuna. Aðgengi er ekki munaður heldur mannréttindi.
Kannski væri ágætis byrjun að sveitarstjórn færi út á bílastæðið við eigið ráðhús, settist í hjólastól og prófaði sjálf að komast inn. Það gæti reynst lærdómsríkari fundur en margir aðrir.
Ragnar Gunnarsson