Að tilheyra dreifbýli

Guðdís Jónsdóttir

Ég hef verið svo lánsöm að hafa fengið tækifæri til að búa í dreifbýli Borgarbyggðar, bæði norðan og sunnan Skarðsheiðar, frá árinu 1995 eða um 30 ár ævi minnar, að undanskildum þeim örfáu árum sem ég hef búið í Borgarnesi. Fyrst sem barn en svo sem foreldri með tvö börn. Síðustu fimm ár hef ég svo fengið að njóta þess að vera sjálfstætt starfandi bóndi í sveit en auðvitað unnið með því utan bús eins og flestir þurfa að gera.

Ég brenn fyrir landbúnaði og málefnum dreifbýlisins sem eru málefni allra þegar upp er staðið. Áhrif íslensk landbúnaðar birtast skýrt í íslenskri menningu þar sem hann hefur verið áberandi viðfangsefni í bókmenntum, tónlist, kvikmyndagerð, myndlist og handverki.

Þá er í sveitum landsins ekki aðeins framleidd verðmæti eins og landbúnaðarvörur heldur eru einnig verðmæti fólgin í búsetu fólks í dreifbýli. Það er nefnilega ekki hægt að „bregða sér af bæ“ á vorin og fara í sumarbústaði, veiði, útilegur og gönguferðir og allt það sem innlent og erlent ferðafólk gerir ef ekki væri fyrir búsetu í dreifbýli sem tryggir að innviðir svo sem ökuhæfir vegir og fjarskiptakerfi séu til staðar.

Ein stærsta atvinnugrein þjóðarinnar er þjónusta við ferðafólk og það kemur ekki einungis til að sjá höfuðborgina okkar heldur vill það fara um landið og njóta þess og sjá það sem landið hefur upp á að bjóða.

Skólar eru eitt af því sem fólk horfir til þegar það velur sér búsetu. Á síðasta kjörtímabili var lokið við nýjan skóla á Kleppjárnsreykjum sem sýnir þann metnað sem Framsókn hefur til að sinna skólamálum svo sómi sé að í dreifbýlinu. Sem starfsmaður i skólakerfinu veit ég að minni skólaeiningar geta hentað einum meðan þær henta ekki öðrum og öfugt og því er það ánægjulegt að slíkir valkostir séu hér til staðar og það styður við dreifða búsetu að búið sé myndarlega að þeim málaflokki. Stefna Framsóknar er að grunnskólar sveitarfélagsins verði áfram tveir og reknir á fjórum starfsstöðvum.

Byggð í sveitum landsins er forsenda fæðuöryggis þjóðarinnar. Við getum framleitt sjálf gæðavöru fyrir okkar markað og til þess verðum við verðum að byggja og nýta landið okkar á skynsamlegan hátt. Fólk er meðvitað um hreinleika íslenskra landbúnaðarvara sem og gildi þess að neyta ferskrar og hollrar matvöru.

Við í Framsókn viljum halda áfram að gera landbúnaði hátt undir höfði enda vitum við hversu mikilvægan sess hann skipar í sveitarfélaginu sem og landinu öllu sem atvinnuvegur og tryggir búsetu um allar sveitir.

Forsenda þess að dreifbýli sé búsetuvalkostur er að grunnþjónusta og innviðir séu eins og best verður á kosið og um það mun Framsóknarflokkurinn standa vörð á næsta kjörtímabili.

X við B þann 16. maí

 

Guðdís Jónsdóttir

Höf. skipar 4. sæti framboðs Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps