
Að eigna sér annarra manna verk
Sigurður Guðmundsson
Oddviti Framsóknarflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð og Skorradal hefur talað með þeim hætti, að gefið er í skyn að öll uppbygging í sveitarfélaginu síðustu ár hafi átt sér stað á yfirstandandi kjörtímabili. Með þessum orðum virðist frambjóðandinn treysta á að kjósendur muni ekki lengra aftur en fjögur ár. Ég hef meiri trú á kjósendum og tel að þeir muni lengra aftur – að minnsta kosti geri ég það sjálfur.
Uppbygging innviða í Borgarbyggð hófst í kjölfar þess að Ísland fór að rétta úr kútnum eftir fjármálakreppuna, eða árið 2014. Þá þegar var hafinn undirbúningur að endurbyggingu Grunnskóla Borgarness, sem síðar var framkvæmt. Ný leikskólabygging reis yfir Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum. Undirbúningur hófst að byggingu húsnæðis fyrir Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, hófst einnig á síðasta kjörtímabili.
Unnið var að deiliskipulagi við Borgarbraut og Kveldúlfsgötu á síðustu kjörtímabilum, sem lagði grunn að uppbyggingu hótels og íbúða á svæðinu. Árið 2020 var ráðist í gerð deiliskipulags og samninga við fyrirtæki um uppbyggingu og gatnagerð í Bjargslandi, auk þess sem unnið var að hugmyndavinnu um gatnagerð við Kveldúlfshöfða. Einnig var unnið að breytingum á deiliskipulagi við Vallarás til að fjölga smærri atvinnulóðum.
Gatnagerð á Hvanneyri hófst árið 2018 og lokið var við deiliskipulag og hönnun nýrra gatna á Varmalandi og Hvanneyri. Keypt var húsnæðis við Þorsteinsgötu til að skapa rými fyrir byggingu nýs íþróttahúss. Þá var keypt nýtt húsnæði fyrir sveitarstjórnarskrifstofur og unnið að flutningi þeirra að Digranesgötu 2.
Ljósleiðari var lagður um allt sveitarfélagið á síðasta kjörtímabili. Þrífösun rafmagns hófst á Mýrunum og var þeirri framkvæmd flýtt um áratugi að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins. Þá var ráðist í framkvæmdir við að leggja slitlag á nokkra kafla af tengivegum í sveitarfélaginu.
Þessi uppbygging innviða í Borgarbyggð var unnin undir forystu Sjálfstæðisflokksins, bæði í sveitarstjórn og ríkisstjórn.
Samhliða þessari uppbyggingu var unnið markvisst að því að styrkja fjárhag sveitarfélagsins með ábyrgri fjármálastjórn. Verkefnið „Brúin til framtíðar“ setti skýr fjárhagsleg viðmið og markmið sem áttu stóran þátt í því að fjárhagur sveitarfélagsins styrktist, á sama tíma og umtalsverð innviðauppbygging átti sér stað og skuldir sveitarfélagsins lækkuðu.
Það er því rangt sem haldið er fram af hálfu Framsóknarflokksins, að þeir hafi rofið kyrrstöðu í uppbyggingu sveitarfélagsins. Raunin er sú að þeir tóku við sveitarfélagi í góðri fjárhagsstöðu, með tilbúnum verkefnum sem annaðhvort voru hafin eða tilbúin til framkvæmdar. Fyrir lá metnaðarfull fjárfestingaráætlun sem byggði á ítarlegri greiningu á fjárfestingargetu sveitarfélagsins, unnin af KPMG í tengslum við „Brúna til framtíðar“.
Þegar Framsóknarflokkurinn tók við stjórn sveitarfélagsins var þessum kúrs breytt. Verkefnið „Brúin til framtíðar“ var lagt til hliðar og fjárfestingaráætlun tvöfölduð, með fyrirséðum áhrifum á fjárhag sveitarfélagsins.
Nú við lok kjörtímabilsins blasir við allt önnur mynd. Skuldir hafa aukist verulega; skuldaviðmið A-hluta hafa farið úr 32% árið 2022 í 70% við síðustu áramót og stefnir nú í 90–100% um mitt þetta ár. Á sama tíma hefur veltufé frá rekstri lækkað úr 14,4% árið 2022 niður í 5,6% árið 2025.
Þessi staða er alvarleg og sýnir að Framsóknarflokknum hefur mistekist að byggja upp sveitarfélagið í samræmi við fjárhagslega getu þess og með skynsamlegri forgangsröðun, líkt og gert var á tveimur kjörtímabilum þar á undan.
Við Sjálfstæðismenn höfum áður tekist á við erfiða stöðu í fjármálum Borgarbyggðar og leitt sveitarfélagið áfram með uppbyggingu innviða og bættum fjárhag. Við treystum okkur vel til þeirra verkefna sem fram undan eru – að halda áfram uppbyggingu samfélagsins og styrkja fjárhag þess. Forgangsverkefni og helsta áskorun næsta kjörtímabils verður að byggja upp leikskóla og íþrótthús í Borgarnesi án þess að ofkeyra fjárhag sveitarfélagsins. Það verkefni treystum við okkur til að leiða til enda ef við fáum stuðning til þess þann 16 maí.
Við höfum sýnt það í verki að Sjálfstæðisflokkurinn er traustur kostur.
Setjið X við D
Sigurður Guðmundsson
Höf. skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps