
Ábyrg fjármál – betri þjónusta á Akranesi
Erla Karlsdóttir
Sterk og ábyrg fjármál eru forsenda þess að sveitarfélag geti sinnt hlutverki sínu vel. Á Akranesi eigum við íbúarnir að geta treyst því að hver króna sem fer úr sameiginlegum sjóðum nýtist í okkar þágu – á skynsaman, gagnsæjan og réttlátan hátt.
Sveitarfélagið sinnir rekstri á mikilvægustu grunnþjónustu sem við reiðum okkur á daglega; leikskólum, skólum, velferðarþjónustu, skipulagi og innviðum. Þess vegna skiptir máli að fjármálin séu ekki aðeins í jafnvægi á blaði, heldur endurspegli raunverulegar þarfir samfélagsins. Forgangsröðun skiptir öllu.
Ég tel að við þurfum að horfa skýrt á hvert fjármagnið fer í dag og spyrja einfaldra en mikilvægra spurninga: Erum við að setja fjármuni þar sem þeir nýtast best? Getum við gert betur án þess að auka álögur á íbúa? Eru tækifæri til hagræðingar sem hafa ekki verið nýtt?
Ábyrg fjármál þurfa ekki alltaf að snúast um niðurskurð – heldur einnig um skynsemi. Með því að einfalda ferla, bæta skipulag og nýta tækni betur getum við aukið skilvirkni og bætt þjónustu á sama tíma. Það er bæði raunhæft og nauðsynlegt.
Gagnsæi er lykilatriði. Íbúar eiga rétt á því að fá að vita hvernig fjármunir eru nýttir og hvers vegna ákveðnar ákvarðanir eru teknar. Með skýrri upplýsingagjöf og opnu samtali byggjum við upp traust og skilning – jafnvel þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir.
Markmiðið er einfalt; að reka Akranes á ábyrgan hátt þannig að við getum veitt framúrskarandi þjónustu án óþarfa kostnaðar. Með skýrri sýn, góðri forgangsröðun og ábyrgum vinnubrögðum getum við tryggt að sveitarfélagið standi sterkt – bæði í dag og til framtíðar.
Ábyrg fjármál eru ekki markmið í sjálfu sér – þau eru leiðin að betra samfélagi.
Erla Karlsdóttir
Höf. skipar 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi