A listi Samhent sveit í Hvalfjarðarsveit

Haraldur Benediktsson

Samhent sveit, framboð til sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit, kynnti stefnuáherslur sínar fyrir sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit, sl. sunnudag í Miðgarði.  Sannarlega má þakka og segja frá því að áhugi íbúa á sveitarfélaginu er mikill – það sýna afar vel sóttir fundir Samhentrar sveitar. Við sem að framboðinu stöndum þökkum frábærar móttökur og áhuga sem við höfum skynjað undanfarna daga.

Það er lykilatriði í lýðræðissamfélagi að framboð setji fram stefnumál sín og áform næsta kjörtímabils þannig að kjósendur hafi glögga mynd á valkostum þegar þeir ákveða hver fær atkvæði þeirra.

Stefnumáhersla Samhentrar sveitar byggir á að Hvalfjarðarsveit verði áfram sjálfstætt og öflugt sveitafélag. Við leggjum áherslu á að sveitarstjórn ástundi öfluga hagsmunagæslu fyrir íbúa sveitafélagins og fyrir sveitafélagið. Standi vörð um tekjur sveitafélagins svo áfram sé hægt að reka hér fyrirmyndar samfélag. Það er sótt að grunntekjustofnum sveitarfélagsins og tapist sú barátta verður að horfast í augu við að afl okkar sem samfélags minnkar.  Við tökum þá ógn alvarlega.

Sveitarstjórn getur og á að hafa áræðni og styrk til berjast fyrir hagsmunum íbúa, eins og t.d. að leiðrétta ósanngirni í húsnæðismálum ungs fólks – hvernig nýjar íbúðir í Hvalfjarðarsveit eru flokkaðar í hlutdeildarlánakerfi fyrstu íbúðarkaupenda. Þar er einfaldlega ekki rétt gefið í dag. Við viljum að þessu verði breytt.

Samhent sveit leggur alla áherslu á að viðhalda hóflegri skattlagningu á íbúa í Hvalfjarðarsveit og verja þannig hag heimila. Áfram er markmið okkar að halda lágri útsvarsálagningu á íbúa og lægri en flest sveitarfélög í landinu. Hóflegum gjöldum á þjónustu og þeim ívilnunum sem sveitarfélagið hefur haft umfram önnur sveitafélög. Það gerist ekki í tómarúmi, heldur með áframhaldandi ábyrgum rekstri og verja tekjur sveitarfélagins af stóriðnaði sem er í sveitarfélaginu.

Samhent sveit horfir til vaxtar, íbúa og atvinnutækifæra. Við erum ekki feimin við að segja að vöxtur í atvinnulífinu krefst öflugs stuðnings – en líka aðhalds af hálfu Hvalfjarðarsveitar.  Enda setjum við fram skýr áform um hvernig við ætlum að takast á við hlutverk okkar sem sveitarfélag. Við setjum sérstakan þunga á faglegan styrk sveitarfélagsins að vernd umhverfis.

Samhent sveit leggur áherslu á gildi landbúnaðar og ferðaþjónustu fyrir Hvalfjarðarsveit – enda búskapur eitt helsta einkenni hennar. Sveitarfélög á Íslandi verða að láta sig framtíð landbúnaðar varða með mun skýri hætti en verið hefur, ekki síst þar sem greinin á víða undir högg að sækja. Í Hvalfjarðarsveit er öflugur landbúnaður og fjölbreyttur. Þróun atvinnulífs byggir að verulegu leyti á nýsköpun og tækniþróun sem þarf og hefur stuðning samfélagsins.  Sömu aðferðum þarf að beita til að efla landbúnað. Ferðaþjónusta er fyrst og fremst framtak einstaklinga en samhentari vinna fjölbreyttra ferðaþjónustuaðila styrkir samfélagið og atvinnugreinina.

Umfangsmesta hlutverk sveitarfélaga er á sviði velferðar og menntunar. Þetta eru lykilþættir samfélagsins og í Hvalfjarðarsveit verða tímamót með nýrri samfélagsmiðstöð og íþróttahúsi í Heiðarborg. Samfélagsmiðstöðin verður miðja í starfi allra aldurshópa í sveitafélaginu. Nýtt leikaskólahúsnæði í Melahverfi er næsta stórframkvæmd sveitarfélagins.

Samhent sveit brýtur blað með því að lýsa yfir áformum um byggingu leikskóla á Innnesinu, við Krossland í framhaldi af byggingu leikskóla i Melahverfi.

Því er enn og aftur grundvallarmál að minna á baráttu okkar gegn því að tekjustofnar sveitafélagins verði ekki laskaðir með áformum stjórnvalda um „hvalrekaskatt“ – sem fyrst og fremst beinist að Hvalfjarðarsveit. Í slíka baráttu þarf reynslumikið fólk í sveitarstjórn.

Samhent sveit er einbeitt í að gera sveitarfélagið okkar ennþá sterkara, sýnilegra og framsæknara. Frekari upplýsingar um stefnuáherslur okkar má kynna sér á fésbókar síðu Samhentrar sveitar. En umfram allt hlökkum við til að eiga samskipti og samtal við íbúana næstu daga – og ekki aðeins fyrir kosningar heldur að viðhalda því á kjörtímabilinu með virku starfi og greiðu aðgengi. Ásetningur okkar er þjónandi og opin stjórnsýsla.

 

Haraldur Benediktsson

Höfundur er oddviti A lista í Hvalfjarðarsveit