Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal

Guðbrandur Tumi Gíslason

Dómsmálaráðherra kynnti nú nýverið fyrirhugaðar breytingar um að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú. Samkvæmt tillögunni eiga lögregluembættin á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að sameinast í eitt embætti.

Þetta er ein stærsta breyting á skipulagi löggæslu á landsbyggðinni um árabil og gefur tilefni til að skoða ekki aðeins hvar yfirstjórn verður staðsett heldur einnig hvernig stjórnunar-, samræmingar- og sérverkefnum verður dreift um hið nýja umdæmi.

Lögreglan hefur enga almennilega aðstöðu í Búðardal og aðeins er starfandi einn lögreglumaður í hálfu starfi í Dalabyggð en samkvæmt þarfagreiningu og viðmiðum ríkislögreglustjóra þyrftu að vera á bilinu fjórir til níu starfandi lögreglumenn.

Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu

Lögreglustjórinn á Vesturlandi lét vinna sérstakt minnisblað árið 2023 undir heitinu „Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu“ sem ríkislögreglustjóri birti svo skýrslu upp úr í kjölfarið og fór ítarlegar yfir þau viðmið sem hann vill hafa á löggæslu og viðbragði og tækifæri sem felast í að hafa lögreglustöð í Búðardal hvernig sem starfsemi innan hennar væri háttað.

Meðal viðmiða ríkislögreglustjóra er að um 90% íbúa séu innan 45 mínútna aksturs frá næstu lögreglustöð. Áætlaður viðbragðstími frá Búðardal og í Borgarnes, Hólmavík, Hvammstanga og Reykhóla er á bilinu 43-46 mínútur. Undantekningin í þessu tilviki er Stykkishólmur þar sem eru 54 mínútna viðbragðstími en þar spilar inn í að vegurinn um Skógarströnd er eini stofnvegurinn í byggð á Vesturlandi sem ekki er með bundnu slitlagi, en það er nú annar kapítuli út af fyrir sig.

 

 

Frá jaðri fjögurra umdæma að miðlægum stað innan eins embættis

Við sameiningu þessara fjögurra stóru umdæma verður Búðardalur ekki miðpunktur alls hins nýja umdæmis í bókstaflegum skilningi, enda nær það austur um allt Norðurland. Búðardalur liggur hins vegar mjög miðlægt gagnvart Vesturlandi, Vestfjörðum og vestari hluta Norðurlands, á mikilvægum samgönguás milli þessara svæða.

Núna þegar lögregluumdæmin eiga að stækka verulega viljum við líka að horft verði á þetta augljósa tækifæri fyrir Dalabyggð. Því er ástæða til að skoða vandlega þann möguleika að við endurskipulagninguna sé sérstaklega skoðað að efla lögreglustöðina í Búðardal, að staðsetja þar stjórnunar- og samræmingarhlutverk innan hins nýja embættis og vinna þar sérhæfð verkefni sem ekki eru bundin við stærstu þéttbýliskjarnana og með því nýta Búðardal sem viðbragðsmiðju fyrir svæði sem nú liggja á mörkum Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra.

 

Guðbrandur Tumi Gíslason

Höfundur er varaoddviti sveitarstjórnar Dalabyggðar