Fréttir

Leita stuðnings til að fullgera heimildarmynd um snjóflóðin á Flateyri

Leita stuðnings til að fullgera heimildarmynd um snjóflóðin á Flateyri

Kvikmyndafélagið Hero Production vinnur nú að framleiðslu heimildarmyndar sem nefnist Nóttin. Þar verður sögð saga eins mesta áfalls Íslandssögunnar, snjóflóðsins sem féll á Flateyri 26. október 1995 og tók með sér líf tuttugu einstaklinga. Myndin sjálf byggir á persónulegum frásögnum þeirra sem af komust, aðstandenda þeirra og björgunarfólks, fléttað saman við sögulegt myndefni, meðal annars úr safni RÚV, ásamt leiknum senum sem endurskapa atburðinn sjálfan í samræmi við frásagnirnar. „Þetta er ekki einungis saga af sorg og hetjudáð, heldur af hugrekki, von og samstöðu heillar þjóðar. Við óskum eftir stuðningi til að styðja við lokahluta framleiðslunnar og verða hluti af því að koma þessari mikilvægu sögu á framfæri,“ segir Búi Baldvinsson framleiðandi í tilkynningu.

„Við þekkjum öll söguna, og þetta er saga sem þarf að segja frá. Nú þurfum við á stuðning ykkar á að halda til að klára síðustu skrefin. Við leitum nú fjármagns til að kvikmynda leiknu tökurnar sem fyrirhugaðar eru í haust. Þessar senur eru lykillinn að því að gefa myndinni þá dýpt, tilfinningu og gæði sem myndin á skilið og lyfta henni úr því hefðbundna í áhrifameiri upplifun fyrir bæði innlendan og erlendan markað. Öll viðtöl hafa nú þegar verið tekin upp og beinagrind myndarinnar liggur fyrir. Dreifing er nú þegar tryggð og verður myndin frumsýnd hjá Sýn, og auk þess liggur fyrir vilyrði frá Bíó Paradís um sýningu í kvikmyndahúsi þeirra stuttu eftir frumsýningu Sýnar.“

Sjá nánar: www.hero.is/nottin