Vilja að dagdvöl aldraðra hefjist á ný í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólms skoraði á fundi sínum í gær, 26. nóvember, á forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra að tryggja Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) þegar í stað heimild og fjármagn til að hefja dagþjálfun á hjúkrunarheimilinu Systraskjóli. Óskað er eftir að komið verði á fót að minnsta kosti þremur dagþjálfunarrýmum til að byrja með og þeim fjölgað í samræmi við metna þörf. Jafnframt er leitað eftir stuðningi þingmanna Norðvesturkjördæmis við málið.