Fjörðurinn og Andakílsá mætast. Ljósm. EÞ

Vatnavextir og há sjávarstaða

Í kjölfar úrhellisrigningar og asahláku, auk þess sem sjávarstaða er óvenjulega há, er ós Andakílsár í Borgarfirði eins og samfellt haf yfir að líta þar sem áin mætir Borgarfirðinum. Heimafólk man ekki eftir viðlíka vatnsmagni í ánni á síðari árum. Andakílsá á upptök sín í Skorradalsvatni sem safnar yfirborðsvatni úr fjöllunum í kring. Meðfylgjandi myndir fékk Skessuhorn sendar í morgun, en þær eru teknar neðan við bæinn Ytri-Skeljabrekku.