
Gerðuberg í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ljósm. mm
Tillaga féll á jöfnum atkvæðum
Á fundi sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps fimmtudaginn 12. nóvember voru teknar fyrir tvær tillögur Eggerts Kjartanssonar sveitarstjórnarmanns um greiðslur til foreldra barna sem sækja leik- og grunnskóla utan þjónustusamnings sveitarfélagsins. Önnur tillagan var samþykkt en hin felld. Oddviti vék frá fundarstjórn við afgreiðslu málsins vegna eigin hagsmuna sem foreldri barna á leik- og grunnskólaaldri.