
Styrkir til einkarekinna fjölmiðla
Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Alls bárust 27 umsóknir um almennan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla innan umsóknarfrests og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 1.036.401.288 kr. Einni umsókn var vísað frá þar sem umsóknin barst að umsóknarfresti liðnum. Þá var tveimur umsóknum synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi.