Hér er allt í stakasta lagi. Ljósm. Skessuhorn/ ChatGPT

Sjö af hverjum tíu ungmennum búa enn í foreldrahúsum

Hátt húsnæðisverð, dýr leigumarkaður og erfiðleikar við að fjármagna fyrstu íbúð eru meðal þeirra þátta sem kunna að skýra hversu stór hluti ungs fólks á Íslandi býr enn í foreldrahúsum. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands búa 72,4% fólks á aldrinum 18–24 ára hjá foreldrum sínum, eða um 26 þúsund einstaklingar. Hlutfallið hefur ekki verið hærra frá árinu 2021 en árið 2022 var það 63,9%. Þá búa um 4.900 einstaklingar á aldrinum 25–29 ára í foreldrahúsum, eða 17,6% aldurshópsins, en það hlutfall hefur hins vegar lækkað frá árinu 2022.