
Káramenn hefja undirbúning eftir sitt besta tímabil
Knattspyrnulið Kára á Akranesi hefur leik á nýju undirbúningstímabili í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, þegar liðið tekur á móti HK í Akraneshöll klukkan 19. Búast má við því að ungir og efnilegir leikmenn verði áberandi hjá báðum liðum og verður fróðlegt að sjá þá spreyta sig.