Andlát – Finnbogi í Hítardal

Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal lést síðastliðinn miðvikudag, 71 árs að aldri, eftir veikindi. Hann var fæddur 31. mars 1955, bjó alla sína tíð í Hítardal þar sem hann var fæddur og uppalinn. Finnbogi var sonur hjónanna Leifs Finnbogasonar og Guðrúnar Jónsdóttur, yngri systir hans er Sigríður búsett í Borgarnesi. Sambýliskona Finnboga er Erla Dögg Ármannsdóttir viðurkenndur bókari og börn þeirra eru þrjú; Leifur, Tinna Kristín og Hulda Rún.

Finnbogi Leifsson stundaði fjárbúskap alla tíð og var góður vörslumaður þess mikla og stórbrotna lands sem forfeður hans trúðu honum fyrir. Hítardalur er landstór jörð og henni fylgir meðal annars gríðarlegt fjalllendi auk Hítarvatns þar sem hann leiðbeindi veiðimönnum við vatnið. Þegar berghlaupið varð í Hítardal í júlí 2018 fór skriðan yfir land hans. Það reyndist Finnboga erfitt en tókst þó á við það af sinni stóísku ró.

Ungur starfaði Finnbogi frá heimilinu hluta úr ári, fjölmörg haust í frystihúsi Sláturhússins í Borgarnesi en auk þess við rúning og önnur störf til sveita. Finnboga var ungum treyst til trúnaðarstarfa fyrir sína sveit. Fyrst var hann kosinn í hreppsnefnd Hraunhrepps 29 ára og varð fljótlega oddviti en eftir sameiningu þegar Borgarbygg verður til 1994 verður hann varamaður í sveitarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn en tekur fljótlega sæti sem aðalmaður. Samtals sat Finnbogi næstlengst allra sveitarstjórnarfulltrúa á Vesturlandi í sveitarstjórn og hlaut viðurkenningu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir alls 37 ára þátttöku í sveitarstjórnarmálum. Einungis Davíð Pétursson á Grund á lengri feril að baki.

Finnbogi Leifsson fór aldrei hátt, en var afar drjúgur sveitarstjórnarfulltrúi, vel undirbúinn og setti sig manna best inn í mál. Sveitungar og samferðarmenn báru mikla virðingu fyrir honum og lýsa honum sem sanngjörnum og öllum öðrum fremri þegar fjallskilamál voru til umræðu. Hann var víðlesinn og fróður, heiðarlegur, yfirvegaður og staðfastur stjórnmálamaður sem var óhræddur við að standa með skoðunum sínum jafnvel á móti þungum straumi. Hann var sanngjarn og virtur jafnt af sínum samherjum sem andstæðingum, fyrsti maður til að leggja sitt af mörkum við að jafna ágreining og ná samstöðu.

Finnbogi var heimakær í þeirri merkingu að hann sótti ekki marga fundi utan héraðs, en sinnti sínu nærsvæði þess betur. Það var honum mikið hjartans mál að hafa samgöngur í lagi og í áratugi beitti hann sér fyrir að fjarskipti við Hítardal yrðu bætt. „Það er fljótlegra að senda reykmerki, en bíða eftir viðbrögðum frá mér í gegnum síma eða tölvupóst,“ sagði hann eitt sinn í samtali við Skessuhorn. Því miður lifði Finnbogi ekki þá stund þegar símasamband var komið á með viðunandi hætti í Hítardal.

Auk þjóðfélagsmála tók Finnbogi talsverðan þátt í félagsmálum, ungmennafélaginu Birni Hítdælakappa og UMSB, ásamt starfi í Félagi sauðfjárbænda. Knattspyrna var eitt helsta áhugamál Finnboga. Hann fylgdist vel með boltanum hér heima og erlendis og hann var rosalegur stuðningsmaður Manchester United.