Verðbólga mælist 5,8% í nóvember

Verðlag lækkaði að meðaltali um 0,54% í nóvember frá fyrri mánuði samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga mælist nú 5,8% og hjaðnar því lítillega frá október þegar hún mældist 5,9%. Sé húsnæðiskostnaður undanskilinn lækkaði almennt verðlag um 0,93% á milli mánaða.