
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm
Úrgangsgámar í Melahverfi um helgina
Dagana 27.–30. nóvember verða gámar fyrir timbur og grófan úrgang til urðunar staðsettir á grenndarstöðinni í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða á meðan unnið er að framtíðarlausn í úrgangsmálum sveitarfélagsins.