
Þrír fórust og fjórtán var bjargað
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru afar umfangsmiklar og aðstæður krefjandi; hvasst og mikil ölduhæð. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang. Fyrst á vettvang slyssins náðu svo skipin Svanur RE og Harðbakur EA.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.
Jökull ÞH 299 stundaði grálúðuveiðar í net og skýrir það hversu langt frá landi skipið var þegar það sökk.
Blaðamannafundar verður nú kl. 9 í ráðherrabústaðnum í Reykjavík til að veita frekari upplýsingar og svara spurningum fjölmiðla.


